Útskrift 10.bekkjar

Glæsileg athöfn við útskrift 10.bekkjar. Við eigum eftir að sakna þessara krakka og óskum þeim innilega til hamingju og góðs gengis í framtíðinni.

Lesa meira

Skólaslit í dag

Í dag verður Salaskóla slitið eftir viðburðarríkan og furðulegan vetur. Nemendur í 1. – 9. bekk mættu í skólann kl. 8:00 í morgun og kl. 11:00 safnast allir saman og skólanum verður slitið. Útskriftarhátíð 10. bekkinga hefst svo kl. 12:30 og þá mæta þeir prúðbúnir og taka við vitnisburði sínum og kveðja skólann.

Lesa meira

Útskrift og skólalok 10. bekkinga

Nú hefur verið slakað á samkomubanninu og það gerir okkur mögulegt að bjóða foreldrum 10. bekkinga að taka þátt í útskriftinni með okkur. Við höfum því ákveðið að útskriftin verði mánudaginn 8. júní í hádeginu kl. 12:30 – 13:30 hér í skólanum. Hverjum nemanda geta fylgt tveir fullorðnir en því miður getum við ekki […]

Lesa meira

Samrómur – Salaskóli í öðru sæti

Salaskóli var í öðru sæti í Lestrarkeppni grunnskólanna á síðunni samromur.is á meðal grunnskóla með fleiri en 450 nemendur. Í heildina lásu nemendur, kennarar og foreldrar 4 þúsund setningar. Keppnin var haldin til þess að safna upptökum af lestri barna og unglinga sem verða notaðar til þess að kenna tölvum og tækjum íslenska tungu. […]

Lesa meira

Meistaramót Salaskóla

Meistaramót Salaskóla í skák 2020 fer fram fimmtudaginn 21.maí (uppstigningardagur) í Stúkunni við Kópavogsvöll. Tefldar verða sjö umferðir eftir svissneska kerfinu. Umhugsunartími verður 8+2 mínútur á skák fyrir hvern keppenda. Taflið hefst kl. 17.30 og ætti að vera lokið um kl. 20.Veitt verða verðlaun fyrir þrjá efstu einstaklinga í 1-4 bekk,5-7 bekk og 8-10 […]

Lesa meira

Verkfalli aflýst

Verkfalli Eflingar hefur verið aflýst og venjulegt skólastarf hefst kl. 8:10 í dag skv. stundaskrá. Nemendur þurfa að mæta með morgunnesti áfram vegna sóttvarna.

Lesa meira

Samrómur – sigrar Salaskóli?

Samrómur er heiti samvinnuverkefnis sem snýr að því að safna röddum Íslendinga til að búa til opið gagnasafn fyrir notkun á íslensku í upplýsingatækni. Verkefninu var hleypt af stokkunum þann 16. október síðastliðinn og til að byrja með snerist átakið um söfnun raddsýna frá fullorðnum einstaklingum. Tilvera íslenskrar tungu stendur hins vegar og fellur […]

Lesa meira

Myndir frá óhefðbundnu skólastarfi

Það er fremur skrítin og óhefðbundin stemning í skólanum þessa dagana. Við ákváðum að taka nokkrar myndir til þess að eiga minningu um þessa skrítnu tíma.  

Lesa meira

COVID-19 og unga fólkið.

Sérstakur umræðuþáttur um COVID-19 helgaður börnum og ungmennum. Fá tækifæri til að leggja spurningar fyrir framlínufólkið Næstkomandi þriðjudagskvöld fá börn og ungmenni orðið í sérstökum umræðuþætti um COVID-19 þar sem framlínan, ráðamenn og sérfræðingar svara þeirra spurningum og vangaveltum. Viðmælendur í þættinum verða sem fyrr Alma Möller landlæknir, Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá Ríkislögreglustjóra, Katrín […]

Lesa meira

VERTU MEÐ Í LANDSLIÐINU Í LESTRI – VIÐ SETJUM HEIMSMET Í APRÍL

Mennta- og menningarmálaráðuneytið hleypti um mánaðarmótin af stokkunum lestrarverkefni fyrir þjóðina, þar sem börn og fullorðnir eru hvött til að nýta til lesturs þann tíma sem gefst við núverandi aðstæður. Lestur er sérstaklega mikilvægur fyrir börn, enda ræðst námsárangur barna að stórum hluta af lesskilningi sem eykst með auknum lestri. Lestur veitir fullorðnum örvandi […]

Lesa meira

Þjónustugjöld vegna leikskóla, grunnskóla og frístundaheimila

Bæjarráð hefur samþykkt neðangreinda tillögu um leiðréttingar á þjónustugjöldum. (enska og pólska fyrir neðan, english & polski below)  „Þjónustugjöld vegna leikskóla, grunnskóla og frístundaheimila. – Í þeim tilvikum sem þjónusta leik- og grunnskóla fellur niður eða skerðist vegna verkfalls, samkomubanns, veikinda eða sóttkvíar starfsmanna eða af öðrum sambærilegum ástæðum verða gjöld fyrir viðkomandi þjónustu leiðrétt […]

Lesa meira

Vefsíða fyrir fjarkennslu

Við erum búin að setja upp sérstaka síðu með nauðsynlegum upplýsingum fyrir ykkur nú meðan á samkomubanni stendur og skólastarf er skert. Við setjum inn skipulag skólastarfsins, svör við spurningum sem við höfum fengið, ábendingar um gott og gagnlegt efni o.s.frv. Hér er tengill á síðuna: bit.ly/salafjarkennsla Síðan er í stöðugri uppfærslu og erum við […]

Lesa meira