Félagsmiðstöð

Fönix

Félagsmiðstöðin Fönix er starfrækt allt skólaárið og er undir stjórn Frístundadeildar hjá Kópavogsbæ. Félagsmiðstöðin er staðsett í Salaskóla. Markmið félagsmiðstöðvarinnar er að bjóða upp á markvisst frístunda- og forvarnarstarf undir handleiðslu fagfólks. Lögð er áhersla á lýðræði, virka þátttöku, uppbyggingu sjálfsmyndar, ánægju og gleði. Í félagsmiðstöðinni er bæði boðið upp á opið starf og hópastarf, sem miða bæði að því að stuðla að auknum félagsþroska, samskiptahæfni, þátttöku og ábyrgð. 

Opnunartími Fönix:

Mánudagur 17:00-18:30 / 19:30-22:00

Miðvikudagur 17:00-18:30 / 19:30-22:00

Annar hver föstudagur 19:30-23:00

Auk þess er opið í frímínútum, hádegishléi og á daginn og er það skipulagt eftir viðverutíma forstöðukonu og starfsfólks. Yfir sumartímann er miðstigsstarf, hópastarf, dag- og hádegisopnanir ásamt kvöldopnunum og er það auglýst sérstaklega. 

Félagsmiðstöðin heldur úti Instagram síðu sem við hvetjum alla foreldra og forráðamenn til þess að skoða. Þar koma inn allar auglýsingar um starfsemi félagsmiðstöðvarinnar og þar er auðvelt að fylgjast með hvað er að gerast hverju sinni: @felagsmidstodinfonix

Forstöðukona: Tinna Heimisdóttir
Gsm: 696 -1627. Netfang: tinnaheimis@kopavogur.is

Dagskrá Fönix

Starfsfólk Fönix