Föstudaginn 4. september verður Treyjudagurinn haldinn í fyrsta sinn á Íslandi. Markmið dagsins er að sýna börnum með krabbamein og fjölskyldum þeirra stuðning með því að klæðast uppáhaldstreyjunni sinni og minna á að við erum öll í sama liði.
Salaskóli tekur að sjálfsögðu þátt í átakinu og hvetur nemendur og starfsfólk til að mæta í treyju þennan dag.
Að baki deginum stendur Börn með krabbamein, styrktarfélag, sem styður börn með krabbamein og fjölskyldur þeirra á margvíslegan hátt. Á Íslandi greinist að meðaltali eitt barn í hverjum mánuði með krabbamein.
Við hvetjum jafnframt foreldra , starfsfólk og aðstandendur til að kynna sér átakið og styðja þetta verðuga málefni eftir eigin getu. Saman getum við sýnt samstöðu með þeim börnum og fjölskyldum sem takast á við erfið veikindi.
💙💙💙Nánari upplýsingar má finna á www.treyjudagur.is 💙💙💙
