Ólympíuhlaup ÍSÍ – Góðgerðahlaup Salaskóla

Nemendur Salaskóla tóku nýverið þátt í Ólympíuhlaupi ÍSÍ, en hlaupið er jafnframt Góðgerðahlaup Salaskóla. Ár hvert safna nemendur styrk frá foreldrum og öðrum velunnurum skólans í nærumhverfinu og gefa þá upphæð sem safnast til góðgerðamála. Í ár var ákveðið að styrkja Grænuhlíð fjölskyldumiðstöð. Alls söfnuðust kr. 130.000- í hlaupinu og afhentum við Grænuhlíð styrkinn áðan.

Áður hafa nemendur Salaskóla styrkt eftirfarandi góðgerðafélög:

2023 Félag barna með krabbamein

2024 Styrktarsjóður Bryndísar Klöru

2025 Downsfélagið

Vel gert Salaskóli! ❤

Birt í flokknum Fréttir.