Jólasjónvarp Salaskóla 2026

Nú leitum við að skemmtiatriðum fyrir jólasjónvarpið okkar, sem verður sýnt í beinu streymi í desember!🎥

Við tökum fagnandi á móti alls kyns jólalegum atriðum , söng, dansi, leiklist, tónlist, gríni eða hverju því sem ykkur dettur í hug! Þetta er tíminn til að láta hæfileikana skína.

Nemendur þyrftu þá að skipuleggja og æfa atriðin á eigin tíma, en upptökur á atriðunum fara svo fram í byrjun desember, við auglýsum tímann og hvenær jólasjónvarpið verður sýnt þegar nær dregur.

Sendið á siggamarrow@kopavogur.is ef þið eða börnin ykkar hafið áhuga á að vera með.

Atriðið má ekki vera lengra en 1 og hálf mínúta og þarf að vera tilbúið og æft fyrir upptökur í stúdíóinu okkar 🙂

Gerum jólasjónvarpið að jólaveislu 🎄🎄

Birt í flokknum Fréttir.