Brunaæfingin gekk vel

Blásið var til stórrar brunaæfingar hér í Salaskóla í morgun og gekk allt að óskum. Slökkviliðsmenn komu á svæðið og bjuggu til svolítinn reyk innandyra. Það tók um 7 mínútur að rýma skólann sem þykir mjög gott. Allir söfnuðust saman á boltavellinum þar sem tekið var manntal. 

Lesa meira

Ávextir í 1. – 5. bekk

199 foreldrar svöruðu könnun okkar um ávextina. Niðurstöður voru þær að 158 kváðust vilja að skólinn sæi um ávextina gegn 30 kr. greiðslu frá foreldrum á dag. 41 sagðist fremur vilja senda börn sín með nesti.

 

Við höfum því ákveðið að bjóða foreldrum nemenda í 1. – 5. bekk að kaupa ávexti í áskrift fyrir 30 kr. á dag.

 

Lesa meira

Vetrarleyfi 25. og 26. október

Eins og kemur fram á skóladagatali þá er vetrarleyfi mánudaginn 25. og þriðjudaginn 26. október. Þá er engin starfsemi í skólanum.

Lesa meira

Skáldkonur í heimsókn

 Skáldkonurnar Vilborg Davíðsdóttir og Sigurbjörg Þrastardóttir komu í heimsókn í skólann í morgun og hittu nemendur í 9. og 10. bekk. Þær sögðu frá textum í ljóðum sínum og skáldsögum og hvernig þeir kvikna og verða til.  

Lesa meira

Fræðst um fjöruna

Krakkarnir í 5. bekk hafa verið að læra um fjöruna undanfarnar vikur. Þeir eru búnir að fara og skoða Sjóminjasafnið Víkina og síðan var fjaran í Kópavoginum skoðuð. Í framhaldi eru krakkarnir að vinna ýmiss verkefni um fjöruna.  Myndir úr ferðinni eru inni á myndasafni skólans.

Lesa meira

Myndir frá fjölgreindaleikum

Myndir frá fjölgreindaleikunum 29. – 30. sept. eru komnar inn á myndasafn skólans. Skoðið hér.

Lesa meira

Foreldraviðtalsdagur

Á mánudaginn er foreldraviðtalsdagur í Salaskóla eins og kemur fram á skóladagatali og umsjónarkennarar hafa upplýst um. Þá ræða kennarar við sérhvern nemanda og foreldra hans um gengi í náminu og það sem mikilvægt er að gera á næstu mánuðum. Foreldrar geta líka hitt sérgreinakennara og rætt við þá.

Lesa meira

Aðalfundur foreldrafélagsins 13. október

Aðalfundur foreldrafélagsins verður miðvikudaginn 13. október kl. 20:00 í sal Salaskóla. Nánari auglýsing síðar.

Lesa meira

Fjölgreindaleikar

Efnt verður til níundu fjölgreindaleika Salaskóla dagana 6. og 7.  október Allir nemendur taka þátt í leikunum og er þeim skipt í 40 hópa og í hverjum hópi eru nemendur af öllum skólastigum.  Keppnisgreinar eru 40 og hver hópur keppir í öllum greinum.  Keppnisgreinar reyna á allar greindir og fjölbreytni er afar mikil.  Þennan dag mætir […]

Lesa meira

Þróunarstarf

Í Salaskóla er unnið markvisst að þróun og endurbótum á námi og kennslu.  Þróunarstarfið er unnið út frá stefnu skólans, grunnskólalögum og markmiðum Aðalnámskrár grunnskóla.  Sérstaklega er unnið að því að koma æ betur til móts við þarfir, áhuga og getu sérhvers einstaklings og stuðlað að vellíðan og góðum árangri nemenda. 

Lesa meira

List- og verkgreinar

List- og verkgreinakennsla List-  og verkgreinar eru kenndar í smiðjum. Nemendur eru aðeins í einni smiðju hverju sinni og að jafnaði tekur hver smiðja 8 – 9 vikur. Tónlist er ekki kennd í smiðjum, heldur í sérstökum tónlistartímum. Í list- og verkgreinum eru námshópar að jafnaði fámennari en í öðrum námsgreinum.

Lesa meira

Aldursblöndun

Rannsóknir sem gerðar hafa verið á aldursblöndun benda til þess að hún hafi jákvæð áhrif á skólastarf og nemendur. Til þess að örva nemendur enn frekar í námi fer nám þeirra að hluta til í aldursblönduðum hópum. Samkennsla árganga af þessu tagi stuðlar að einstaklingsmiðaðri kennslu auk þess sem hún bætir tengsl milli nemenda, […]

Lesa meira