Árshátíð 2010

small_arsh.jpgÁrshátíð Fönixar og Salaskóla var haldin í gærkvöldi fyrir unglingadeild og tókst sérlega vel. Krakkarnir komu í sínu fínasta pússi, borðuðu góðan mat saman sem Erik, kokkur skólans, eldaði af miklu listfengi.

Lesa meira

Lífið vaknar að vori

Nemendur margra bekkja eru á fullu í útikennsluverkefnum. Nú er verið að byrja á veðurathugunum í 5. bekk en áður voru þau í ljóðagerð úti í náttúrinni og höfðu m.s. "viðtöl" við steina og plöntur. Lífið vaknar að vori er viðfangsefni fjórðubekkinga en þá fjalla nemendur um á hvern hátt náttúran vaknar til lífsins og […]

Lesa meira

Textíll til góðs

small002.jpgÍ dag kom fulltrúi Rauða krossins í skólann og sótti heim nokkra nemendur, allt stúlkur, sem höfðu valið valgreinina"Textíll til góðs" hluta vetrar. Tilgangur valgreinarinnar var að framleiða barnaföt sem yrðu gefin til styrktar hjálparstarfi Rauða krossins í útlöndum. Þess má geta að leitað var til fyrirtækisins Föndru um styrk sem gaf allt það efni sem saumað var úr.  

Lesa meira

Gleðilegt sumar

Frí er í skólanum á morgun, Sumardaginn fyrsta. Nemendum og foreldrum eru færðar bestu óskir um gleðilegt sumar með kærri þökk fyrir gott samstarf á skólaárinu sem senn er á enda. Megi sumarkoman verða ykkur öllum til blesssunar. Starfsfólk Salaskóla

Lesa meira

Salaskóli varð Íslandsmeistari grunnskólasveita

islandsmeistarar.jpg Við samgleðjumst frábærum árangri sem skáksveit Salaskóla náði þegar hún varð Íslandsmeistari grunnskólasveita sem fór fram í Skákhöllinni Faxafeni 12, um helgina.  Salaskóli hafði nokkra yfirburði og fékk sveitin 33 vinninga af 36 mögulegum. Sjá nánar um mótið hér
Myndir frá Íslandsmeistaramóti grunnskólasveita.
Myndir frá Kjördæmamóti Reykjaness.

Lesa meira

Góður árangur

Nemendur og starfsfólk samfögnuðu á sal skólans í dag góðum árangri í skák og fimleikum. Eins og fram kemur hér á síðunni vann Tinna Óðinsdóttir Norðurlandameistaratitil í fimleikum á dögunum en að auki náðu Páll og Eyþór Trausti að verða Kópavogsmeistarar í skólaskák í eldri og yngri aldursflokki. Fleiri nemendur stóðu sig afar vel í skólaskákinni […]

Lesa meira

Páll Andrason og Eyþór Trausti Kópavogsmeistarar í skólaskák

Meistaramót Kópavogs í skólaskák var haldið í Hjallaskóla þann 13 april 2010, og mættu alls 56 keppendur til leiks. Keppt var í tveimur aldursflokkum, 1.-7. bekk og 8.-10. Tefldar voru átta umferðir með 12 mínútna umhugsunartíma. Tveir efstu úr hvorum flokki komast svo áfram á Kjördæmismót Reykjaness. Salaskóli hafði mikla yfirburði í báðum flokkum og tók öll fjögur sætin sem komast áfram. Í eldri flokki var það hinn geðþekki Páll Andrason sem bar sigur úr býtum, Birkir Karl Sigurðsson varð annar og Guðmundur Kristinn Lee þriðji, allir úr Salaskóla. Í yngri flokki sigraði hinn efnilegi Eyþór Trausti Jóhannsson eftir spennandi keppni við félaga sinn Baldur Búa Heimisson, en Róbert Leó Jónsson, Hjallaskóla, varð þriðji. Skákstjórar voru Smári Rafn Teitsson og Tómas Rasmus.

Lesa meira

Tinna varð Norðurlandameistari

Við hér í Salaskóla samgleðjumst innilega Tinnu Óðinsdóttur sem er í 10. bekk  og vann það einstaka afrek um helgina að verða Norðurlandameistari á slá í áhaldafimleikum. Lið Gerplu sem Tinna var liðsmaður í vann einnig silfur á þessu Norðurlandamóti í áhaldafimleikum.  

Lesa meira

Tilkynning til nemenda í 7. – 10. bekk

Vegna skipulags næsta skólaárs þurfum við upplýsingar um hvort nemendur í 7. – 9. bekk Salaskóla ætli sér að fá tómstundastarf sitt metið sem valgrein í skólanum næsta vetur. Biðjum því um að þeir svari könnun um það núna strax og í síðasta lagi á sunnudag. Línkurinn er http://www.surveymonkey.com/s/YHVDQG8

Lesa meira

Níundubekkingar dvöldu á Laugum

Tengill í myndir. 
Níundubekkingar dvöldu á Laugum alla síðastliðna viku ásamt nemendum úr Ingunnarskóla í Grafarholti. Viðfangsefni voru af margvíslegum toga s.s. hópefli, útivist og sirkuskúnstir sem margir náðu gríðarlega góðri færni í. Nemendum var skipt upp í þrjú lið sem söfnuðu stigum allan tímann meðan á dvölinni stóð. Það lið sem náði flestum heildarstigum í lokin vann hina svokölluðu Laugaleika.

Lesa meira

Salaskóli í þriðja sæti

Salaskóli varð í þriðja sæti á Íslandsmóti grunnskólasveita sem fram fór 21. mars síðastliðinn í Vetrargarðinum í Smáralind. Það var d-sveit skólans sem varð efst d-sveita. Það var Skákakademía Reykjavíkur sem stóð fyrir mótinu. Við óskum skáksnillingunum til hamingju með frábæran árangur. Nánar um mótið hér.

Lesa meira

Vel mætt á páskabingó

Páskabingó foreldrafélagsins tókst vel og var góð mæting bæði nemenda og foreldra. Bingóvinningar voru ekki af verri endanum. Stemninguna sem var á bingóinu má skoða nánar á þessum myndum.

Lesa meira