Norðurlandamót í skák

Keppnislið Salaskóla í unglingaflokki fer á  morgun, fimmtudag, til Svíþjóðar til að keppa á Norðurlandamóti í liðakeppni skóla í skák. Keppnin fer fram dagana 10.-14. sept. í Stokkhólmi. Fylgist með gengi liðsins hér á heimasíðunni um helgina. Linkur á fréttir.

Lesa meira

Vel sótt námskynning í unglingadeild

Kennarar unglingadeildar kynntu vetrarstarfið fyrir foreldrum í morgun. Kynningin hófst á sal. Þar voru allir kennarar kynntir og tveir kennarar sýndu foreldrum gagnlega námsvefi. Forstöðumaður félagsmiðstöðvarinnar sagði frá starfinu í vetur. Að þessu loknu fóru foreldrar með umsjónarkennurum í kennslustofur. Foreldrar fjölmenntu á kynninguna og við erum mjög ánægð með góða mætingu.

Lesa meira

Námskynning – unglingastig

Námskynningin fyrir foreldra nemenda í 8. – 10. bekk miðvikudaginn 09. sept. kl. 08:15 – 09:15 Byrjað verður í salnum og síðan farið í heimastofur. Mikilvægt að allir foreldrar mæti. Nemendur mæta í skólann þennan dag kl. 09:55.  

Lesa meira

Vettvangsferð að Vífilstaðavatni

small_vifistadavatn.jpgÞað var mikið fjör í dag þegar nemendur úr fjórða bekk, lundar og teistur, fóru í vettvangsferð að Vífilstaðavatni. Meðferðis voru háfar, prik og box af ýmsum stærðum og gerðum. Þó nokkuð margir gleymdu stígvélum, en létu það ekki stoppa sig, heldur rifu af sér strigaskóna og óðu út í.

Lesa meira

Viðbragsáætlun Salaskóla lítur dagsins ljós

Viðbragðsáætlun  Salaskóla var gefin út í dag 3.september 2009. Samkvæmt 15.grein laga um almannavarnir, nr. 82/2008, ber stofnunum á vegum sveitarfélaga að gera viðbragðsáætlun til að takast á við afleiðingar neyðarástands.  Viðbragðsáætlun skólanna er samræmd að uppbyggingu. Geymir hún almennar upplýsingar frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti sóttvarnarlæknis.  Nokkra kafla semja skólarnir sjálfir. Hér er hægt […]

Lesa meira

Val í 8.-10. bekk

Við höfum gert talsverðar breytingar á valinu í unglingadeildinni, 8. - 10. bekk, í Salaskóla. Markmið okkar er að nemendur fái sem mest út úr kennslunni í valgreinunum og tímarnir nýtist sem best. 8. bekkur fær nú að velja og er það í samræmi við breytingar sem gerðar voru á grunnskólalögum í fyrra.  Valtímabilin í vetur verða 6 og á hverju valtímabili verða nemendur að velja 6 kennslustundir alls. Þá eru námskeiðin misveigamikil eða frá 2 kennslustundum á viku upp í 6 kennslustundir. Möguleiki er að velja sömu grein 2-3 yfir veturinn.

Lesa meira

Íþróttir í Salaskóla

Hér má nálgast áætlanir fyrir íþróttir í Salaskóla – á haustönn 2009: Íþróttir í 8. – 10.bekk (pdf-skjal til útprentunar) Íþróttir í 5. – 7. bekk (pdf-skjal til útprentunar) Íþróttir í 1. – 4. bekk (pdf-skjal  til útprentunar)

Lesa meira

Skólasetning Salaskóla

Hér koma nokkrar myndir frá skólasetningu 24. ágúst 2009 þegar nemendur í 2. – 10. bekk mættu í fyrsta skipti í skólann.

Lesa meira

Dægradvölin fullmönnuð

Búið er að ráða í allar lausar stöður í dægradvöl Salaskóla. Nýr umsjónarmaður eru Auðbjörg Sigurðardóttir og sér hún um daglegt skipulag en skráningar og fjármálaumsýsla er í höndum skólaritara, hennar Ásdísar. Aðrir starfsmenn í dægradvöl eru Svana, Álfheiður, Margrét, Íris Hólm, Birkir og Fatmir. Við biðjum foreldra um að staðfesta skráningu og dvalartíma […]

Lesa meira

Skólasetning

Salaskóli verður settur mánudaginn 24. ágúst nk. Nemendur mæta sem hér segir: 2., 3. og 4. bekkur        kl.   9:00 5., 6. og 7. bekkur        kl. 10:00 8., 9. og 10. bekkur      kl. 11:00 Kennsla í 2. – 3. bekk hefst samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 25. ágúst.  Nemendur sem eru að fara í 1. […]

Lesa meira

Skólasetning 24. ágúst

Skrifstofa Salaskóla hefur nú opnað aftur eftir sumarleyfi. Kennarar koma til starfa mánudaginn 17. ágúst kl 8:30.  Skólasetning er mánudaginn 24. ágúst. Nánari tímasetningar verða auglýstar síðar. Kennsla skv. stundaskrá hefst 25. ágúst.

Lesa meira