Dregur úr einelti í Salaskóla

Í desember var gerð könnun meðal nemenda í 4. – 10. bekk um einelti. Samskonar könnun hefur verið lögð fyrir á hverju hausti undanfarin ár. Niðurstöður könnunarinnar er athyglisverðar. Í fyrsta lagi dregur heldur úr einelti frá því fyrir ári síðan, þ.e. nú segjast 9% nemenda hafa orðið fyrir einelti á móti tæplega 15% […]

Lesa meira

Vegna veðurs

Skv. veðurspá fer veður á höfuðborgarsvæðinu versnandi þegar líður á daginn og það getur skollið á blindbylur. Við höfum því slegið skákmóti nemenda í 1. – 4. bekk sem átti að vera í dag á frest og það verður eftir viku. Dægradvölin er opin en við hvetjum þá foreldra sem það geta að sækja […]

Lesa meira

Viðhorfakönnun foreldra

Vorið 2009 var gerð könnun meðal foreldra um viðhorf þeirra til skólans og skólastarfsins. Könnunin er liður í sjálfsmati skólans og eru niðurstöður úr henni nú aðgengilegar á vefsíðu skólans. Smellið hér eða farið inn á hnappinn SKÓLINN og veljið Mat á skólastarfi. 

Lesa meira

Hundraðdagahátíðin

Mánudaginn 8. febrúar síðastliðinn var hundraðasti skóladagurinn hjá fyrsta bekk og var haldin hátíð í tilefni þess. Bekkjunum  var öllum  blandað saman og fóru þau á stöðvar og unnu ýmis verkefni tengd tugum og hundraði. Þau bjuggu meðal annars til 100 daga kórónu, heftuðu saman 10 hlekki og tíndu 10 mismunandi góðgæti í poka […]

Lesa meira

Öskudagsgleðin tókst vel – MYNDIR

oskudagursmall.jpgMYNDIRNAR segja sína sögu. Prúðbúnar verur, sumar býsna skuggalegar, aðrar afar hátíðlegar sáust á göngum Salaskóla í morgun. Stóru krakkarnir aðstoðuðu þau yngri við andlitsmálningu og allir höfðu nóg fyrir stafni. Búnar voru til grímur og hattar, farið í leiki, málað, kókoskúlur framleiddar í stórum stíl svo eitthvað sé nefnt. 

Lesa meira

Vetrarleyfi

Vetrarleyfi verður í Salaskóla dagana 18. – 19. febrúar eins og fram kemur á skóladagatali. Einnig er frí hjá nemendum mánudaginn 22. febrúar á skipulagsdegi kennara. Nemendur mæta í skólann aftur þriðjudaginn 23. febrúar samkvæmt stundaskrá.

Lesa meira

Fjör á öskudag

trudur2.jpgÁ morgun, öskudag, verður mikið fjör hér í skólanum. Þá verður skólastarf brotið upp með ýmsum uppákomum. Nemendur mæta um kl. 9 en geta komið fyrr ef foreldrar óska þess. Það má koma í grímubúningum og boðið er upp á andlitsmálun í skólanum.

Lesa meira

Takið vel á móti dósasöfnurum

Lególiðið okkar varð Íslandsmeistari síðasta haust. Liðið er því á leið á Evrópumót grunnskóla í Legó í Istanbúl 21. - 25. apríl. nk. Liðið þarf að safna fyrir ferðinni og mun gera það með ýmsum hætti. Nú næstu daga ætla krakkarnir að ganga í hús í hverfinu og safna dósum og biðjum við ykkur um að taka vel á móti þeim og leggja þessu verkefni lið með. Krakkarnir verða sérstaklega merktir.

Lesa meira

Verk nemenda

Inn á myndasafn skólans voru að koma myndir frá verkgreinum sem sýna verk nemenda sem unnin hafa verið í vetur. Þar er annars vegar myndir frá myndmennt og hins vegar frá smíði.

Lesa meira

Innritun í framhaldsskóla fyrir haustönn 2010

Rafræn innritun

Innritun í framhaldsskóla er rafræn, þ.e. sótt er um skólavist á netinu. Framhaldsskólar skilgreina sjálfir í samráði við menntamálaráðuneytið inntökuskilyrði á einstakar námsbrautir. Inntökuskilyrði eru birt í skólanámskrá á vefsíðu hvers framhaldsskóla.

Smellið á lesa meira til að fá frekari upplýsingar.

Lesa meira

Skákakademia í Salaskóla

akademia_02.jpgVið hófum störf hjá skákakademiu Kópavogs föstudaginn 29. janúar 2010. Skákakademia Kópavogs er styrkt af skákstyrktarsjóði Kópavogs. Kennarar eru frá Skákskóla Íslands en Salaskóli sér um aðbúnað og aðstöðu. Á myndinni sem fylgir eru eftirtaldir einstaklingar.

Lesa meira

Morgunkaffi – dagsetningar komnar

Nú eru skólastjórnendur að bjóða foreldrum hvers bekkjar í morgunkaffi með spjalli og spekúleringum um skólastarfið. Fundirnir hefjast allir kl. 8:10 og eru á kaffistofu starfsmanna. Að loknu spjalli er bekkurinn heimsóttur. Allt búið kl. 9:00. Dagsetningar eru komnar hér á netið og hægt er að sjá þær með því að smella hér. Við hvetjum […]

Lesa meira