100dagar.jpg

Hundraðdagahátíðin

100dagar.jpgMánudaginn 8. febrúar síðastliðinn var hundraðasti skóladagurinn hjá fyrsta bekk og var haldin hátíð í tilefni þess. Bekkjunum  var öllum  blandað saman og fóru þau á stöðvar og unnu ýmis verkefni tengd tugum og hundraði. Þau bjuggu meðal annars til 100 daga kórónu, heftuðu saman 10 hlekki og tíndu 10 mismunandi góðgæti í poka þar sem 10 var af hverri sort. Að stöðvavinnunni lokinni var svo horft á mynd og nammið borðar. Dagurinn gekk mjög vel og voru krakkarnir stillt og góð.

oskudagursmall.jpg

Öskudagsgleðin tókst vel – MYNDIR

oskudagursmall.jpgMYNDIRNAR segja sína sögu. Prúðbúnar verur, sumar býsna skuggalegar, aðrar afar hátíðlegar sáust á göngum Salaskóla í morgun. Stóru krakkarnir aðstoðuðu þau yngri við andlitsmálningu og allir höfðu nóg fyrir stafni. Búnar voru til grímur og hattar, farið í leiki, málað, kókoskúlur framleiddar í stórum stíl svo eitthvað sé nefnt. 

Sum þau eldri brugðu sér í íþróttahúsið og áttu góða stund þar við íþróttaiðkun. Allir dönsuðu, sungu og virtust skemmta sér hið besta. Pylsurnar runnu síðan ljúflega niður í hádeginu eftir lífleg morgunverk. 

Vetrarleyfi

Vetrarleyfi verður í Salaskóla dagana 18. – 19. febrúar eins og fram kemur á skóladagatali. Einnig er frí hjá nemendum mánudaginn 22. febrúar á skipulagsdegi kennara. Nemendur mæta í skólann aftur þriðjudaginn 23. febrúar samkvæmt stundaskrá.

trudur2.jpg

Fjör á öskudag

trudur2.jpgÁ morgun, öskudag, verður mikið fjör hér í skólanum. Þá verður skólastarf brotið upp með ýmsum uppákomum. Nemendur mæta um kl. 9 en geta komið fyrr ef foreldrar óska þess. Það má koma í grímubúningum og boðið er upp á andlitsmálun í skólanum. Skemmtun verður á sal fyrir alla aldurshópa þar sem verður mikið glens og gaman en auk þess verður stöðvavinna og ýmislegt fleira í boði fyrir krakkana. Endað verður á pylsuveislu um klukkan 12. Hlökkum til að sjá ykkur, krakkar.

Takið vel á móti dósasöfnurum

Lególiðið okkar varð Íslandsmeistari síðasta haust. Liðið er því á leið á Evrópumót grunnskóla í Legó í Istanbúl 21. – 25. apríl. nk. Liðið þarf að safna fyrir ferðinni og mun gera það með ýmsum hætti. Nú næstu daga ætla krakkarnir að ganga í hús í hverfinu og safna dósum og biðjum við ykkur um að taka vel á móti þeim og leggja þessu verkefni lið með. Krakkarnir verða sérstaklega merktir.

Ef einhver hefur aðgang að fyrirtæki sem er tilbúið til að leggja fram styrk og fá í staðinn nafns síns getið eða lógó, þá þiggjum við það líka, þarf ekki að vera meira en 5 þús kr. en allt er þegið. Hafið samband við skólastjóra ef um slíkt er að ræða.

LEGÓ keppnin er árleg keppni milli grunnskóla á Íslandi í tækniúrlausnum og eru LEGÓ kubbar notaðir í því skyni. Reynir mjög á tæknilega úrlausnir, frumkvöðla hugsun, skapandi nálgun, forritun, rannsóknarvinnu að ógleymdri samvinnu nemenda. Salaskóli hefur verið framarlega í þessum fræðum á undanförnum árum.

Skapandi hugsun er grundvöllur nýsköpunar í atvinnulífi. Mikilvægt er hún fái aukið vægi í námi barna og unglinga. Með þátttöku í Evrópukeppni af þessari tagi verður hægt að vekja athygli á þessu mikilvæga starfi og hrífa fleiri með, til heilla fyrir íslenskt atvinnulíf.

Lið Salaskóla er einstaklega öflugt núna og vonir standa til að ná góðu gengi á mótinu. Það myndi væntanlega vekja jákvæða athygli á landi og þjóð úti í henni Evrópu.

Kostnaður við ferðina er nokkur og felst að mestu í að komast til og frá keppnisstað auk gistingar. Nemendur verða sjálfir að kosta ferðina þar sem skólinn sem slíkur hefur ekki fjármuni til að standa straum af ferðinni. Því leitum við til ykkar um aðstoð við fjáröflun, þar sem margt smátt gerir eitt stórt.

solinskin.jpg

Verk nemenda

solinskin.jpgInn á myndasafn skólans voru að koma myndir frá verkgreinum sem sýna verk nemenda sem unnin hafa verið í vetur. Þar er annars vegar myndir frá myndmennt og hins vegar frá smíði.

Innritun í framhaldsskóla fyrir haustönn 2010

Rafræn innritun

Innritun í framhaldsskóla er rafræn, þ.e. sótt er um skólavist á netinu. Framhaldsskólar skilgreina sjálfir í samráði við menntamálaráðuneytið inntökuskilyrði á einstakar námsbrautir. Inntökuskilyrði eru birt í skólanámskrá á vefsíðu hvers framhaldsskóla.

Smellið á lesa meira til að fá frekari upplýsingar.

Innritun nemenda úr 10. bekk grunnskóla (fæddir 1994 eða síðar)
Forinnritun verður 12.-16. apríl. Þá eiga nemendur að velja aðalskóla og annan til vara. Nemendur í tilteknum grunnskólum eiga forgang að skólavist í ákveðnum framhaldsskólum hafi þeir staðist inntökuskilyrði. Þeim er hins vegar frjálst að sækja um hvaða skóla sem er.
Nemendur geta endurskoðað val sitt 7.-11. júní en þá daga berst framhaldsskólum lokavitnisburður grunnskóla um frammistöðu þeirra.Foreldrar/forráðamenn nemenda í 10. bekk fá bréf frá mennta- og menningarmálaráðuneyti þar sem gerð er grein fyrir fyrirkomulagi innritunarinnar. Almenn innritun eldri nemendaInnritun eldri nemenda (fæddir 1993 eða fyrr) hefst 20. apríl og henni lýkur 11. júní.Hvaða aðstöðu þarf?
Þar sem innritun fer fram á netinu þurfa nemendur að komast í nettengda tölvu til að geta sótt um. Hægt er að komast í nettengdar tölvur bæði í grunnskólum og framhaldskólum.
Allir framhaldsskólar bjóða upp á aðstoð sé hennar óskað.

Þarf að senda eitthvað með umsóknunum?
Nemendur 10. bekkjar þurfa ekki að senda afrit af prófskírteinum úr með umsóknum. Einkunnirnar verða sendar rafrænt til þess skóla sem sótt er um. Vottorð eða sérstakar upplýsingar um nemendur, sem ekki er að finna á rafræna umsóknareyðublaðinu, geta nemendur hengt við umsókn sem fylgiskjal eða sent í pósti til skóla. Aðrir umsækjendur þurfa að senda með umsókn gögn sem ekki eru til staðar í upplýsingakerfi framhaldsskóla (Innu).

Hvar má fá aðstoð og ráðgjöf?
Námsráðgjafar í grunn- og framhaldsskólum þekkja vel til náms á framhaldsskólastigi og eru umsækjendur hvattir til að leita upplýsinga og ráðgjafar hjá þeim. Gott er að vera tímanlega á ferðinni því að maímánuður er mikill annatími í framhaldsskólum.

Hvernig er sótt um?
Umsækjendur þurfa að sækja um veflykil sem opnar þeim persónulegan aðgang að innrituninni. Sótt er um veflykil frá og með 1. apríl á menntagatt.is/innritun og kemur hann til baka í tölvupósti. Á sama stað er rafrænt umsóknareyðublað með leiðbeiningum og ýmsar upplýsingar um nám í framhaldsskólum. Umsóknarfrestur rennur út á miðnætti 11. júní 2010

akademia_02.jpg

Skákakademia í Salaskóla

akademia_02.jpgVið hófum störf hjá skákakademiu Kópavogs föstudaginn 29. janúar 2010. Skákakademia Kópavogs er styrkt af skákstyrktarsjóði Kópavogs. Kennarar eru frá Skákskóla Íslands en Salaskóli sér um aðbúnað og aðstöðu. Á myndinni sem fylgir eru eftirtaldir einstaklingar.

Aftari röð frá vinstri:
Lenka Ptacnikova skákmeistari og skákkennari, Tómas Rasmus kennari, Helgi Ólafsson stórmeistari og skákkennari og Hafsteinn Karlsson, skólastjóri Salaskóla.
Fremri röð: Skáknemendur í fyrsta tímanum hjá skákakademiunni.
Hildur Berglind Jóhannsdóttir, Eiríkur Örn Brynjarsson, Ómar Yamak, Guðmundur Kristinn Lee og Birkir Karl Sigurðsson.
Fleiri nemendur eru væntanlegir.

Æfingar skákakademiunnar verða líklega framvegis þannig:
Staður vísindamiðstöð Salaskóla.
Mánudagur kl: 14:00 til 16:00
Miðvikudagur kl: 12:30 til 14:00
Föstudagur kl: 14:00 til 16:00

Morgunkaffi – dagsetningar komnar

Nú eru skólastjórnendur að bjóða foreldrum hvers bekkjar í morgunkaffi með spjalli og spekúleringum um skólastarfið. Fundirnir hefjast allir kl. 8:10 og eru á kaffistofu starfsmanna. Að loknu spjalli er bekkurinn heimsóttur. Allt búið kl. 9:00. Dagsetningar eru komnar hér á netið og hægt er að sjá þær með því að smella hér.

Við hvetjum alla foreldra, bæði pabba og mömmur til að mæta.

baking1.jpg

Góðgæti í heimilisfræði

baking1.jpgÍ heimilisfræði læra nemendur góðar vinnuaðferðir í meðferð matvæla og útbúa alls kyns góðgæti þar sem ákveðnar uppskriftir eru lagðar til grundvallar. Nemendur eru oft spenntir að fá uppskriftir heim til þess að þeir geti prófað sig áfram þar. Uppskriftum nemenda í 1. – 4. bekk hefur verið safnað saman í eina bók og er að finna í heimilisfræðihorninu hér á síðunni ásamt fleiri uppskriftum.