Upplýsingar fyrir næsta skólaár
Vekjum athygli á að hér til hliðar undir tilkynningar er að finna skóladagatal og ýmsar upplýsingar fyrir skólaárið 2010-2011.
Lesa meiraSumarleyfi
Skrifstofa Salaskóla er lokuð vegna sumarleyfa frá og með 21. júní. Opnar aftur mánudaginn 9. ágúst.
Lesa meiraÚtskrift og skólaslit
Í gær, 7. júní, voru tíundubekkingar útskrifaðir frá skólanum við hátíðlega athöfn á sal skólans. Nemendur fengu afhentan vitnisburð sinn ásamt umsögn í gamansömum tóni og góðum framtíðaróskum.
Lesa meira
Lególiðið farið til Tyrklands
Lególið skólans, Robobobo, er komið til Istanbul í Tryrklandi þar sem liðið tekur þátt í Evrópumóti First Lego League. Eins og kunnugt er vann liðið þáttökurétt í Evrópukeppninni eftir frækilega frammistöðu í Legókeppninni sem haldin var á Íslandi í nóvember síðastliðinn. Fylgist með krökkunum á vefsíðunni þeirra þar sem þau setja inn fréttir jafnt og […]
Lesa meiraSpiladrottningar og kóngar í Salaskóla
Haldið var meistaramót væntanlegrar unglingadeildar Salaskóla í félagsvist sl. mánudag. Allir krakkar í 7., 8., og 9. bekk voru með og krýndum við spiladrottningu og spilakóng skólans. Mótsstjórar voru Tómas Rasmus og Rúnar Þór Bjarnason. Keppni um spilakóng og spiladrottningu verður framvegis a.m.k. einu sinni á ári og keppa þá nemendur í 7., 8., og 9. bekk um þann titil.
Skólaslit og vorhátíð
Mánudaginn 7. júní verður útskrift 10. bekkinga kl. 20:00. Þetta er hátíðleg athöfn, hlýleg kveðjustund sem býr til góðar minningar um skólann og krakkana. Foreldrar koma með kökur á hlaðborð. Þriðjudaginn 8. júní verða skólaslit sem hér segir: kl. 11:00 – 8. og 9. bekkur – skólaslitin eru á sal og nemendur fá […]
Lesa meiraFlórgoðar skemmtu sér á ströndinni
Nemendur í Flórgoðum áttu góðan dag í Nauthólsvík þegar þeir brugðu sér þangað í strætó með kennurunum sínum einn daginn í síðustu viku. Veðrið lék við krakkana, þeir flatmöguðu í sólinni, busluðu í sjónum og fóru í pottinn. Síðan var grillað ofan í liðið sem mæltist vel fyrir. Hér eru nokkrar myndir frá velheppnaðri strandferð […]
Lesa meiraReiptog í Guðmundarlundi
Góða veðrið kallar á öðruvísi áherslur í skólastarfi eins og dæmin sýna þessa dagana. Nemendur í 6. og 7. bekk tóku fram hjólin sín og reiðhjólahjálmana og hjóluðu með kennurunum sínum í Guðmundarlund í morgun. Veðrið lék við þau allan tímann, farið var í reiptog þar sem stelpur kepptu á móti strákum. Síðan var […]
Lesa meiraHjólaferðir í blíðviðrinu
Í blíðviðrinu undanfarna daga hafa margir kennarar farið út með bekkina sína og nám farið fram utan dyra. Starfsfólk og krakkar í dægradvölinni gerðu sér einnig lítið fyrir í dag og fóru í hjólatúr saman í nágrenni skólans. Þau höfðu nesti með í för og ætluðu að gæða sér á því í Ársölum.
Lesa meiraNemendur gróðursettu tré
Í dag fóru tveir fulltrúar okkar, Karitas Marý Bjarnadóttir í Örnum og Hallgrímur Hrafn Guðnason í Fálkum, og gróðursettu tré í skógarreitnum Tungu í Lindahverfi. Er þetta í tengslum við dag líffræðilegs fjölbreytileika sem er á morgun 22. maí. Umhverfisráðuneytið, Skógræktarfélag Íslands og Yrkjusjóður- sjóður æskunnar til ræktunar landsins- eru í samstarfi um þetta […]
Lesa meiraFrétt um ROBOBOBO á mbl.is
Í dag birtist frétt á vefmiðlinum mbl.is um lególið Salaskóla, ROBOBOBO. Liðið er í óðaönn að undirbúa sig því nú styttist í opna Evrópumót First Lego league sem haldið er í Istanbúl í Tyrklandi í byrjun júní. Skoðið frétt hér. Vefsíða Robobobo er http://robobobo.freehostia.com/lego/
Lesa meiraKrakkar og karfar
Á dögunum stóðu nemendur í 8. bekk í stórræðum þegar þeir fengu það verkefni að kryfja í náttúrufræðitíma.
Lesa meira