Jóhannes úr Kötlum kynntur nemendum

Góðir gestir komu í skólann í dag til að heimsækja sérstaklega  nemendur í 6. og 7. bekk. Þau Valgeir Guðjónsson tónlistarmaður og Steinunn Jóhannesdóttir rithöfundur kynntu skáldið Jóhannes frá Kötlum með tali og tónum. Nemendur hlustuðu með athygli, hrifust með söngnum og voru áreiðanlega  margs vísari á eftir.  Ávallt er gaman að fá ljúfa heimsókn sem þessa og brjóta upp hversdagsleikann […]

Lesa meira

Myndir frá Reykjum

Fleiri myndir eru nú komnar í myndasafn skólans frá Reykjaferð sjöundubekkinga á dögunum. Þær eru misjafnar að gæðum en ákveðið var að láta þær flakka engu að síður.

Lesa meira

Vetrarfrí

Krakkarnir í 6. bekk gerðu sér glaðan dag í morgun og komu með kökur í skólann sem fóru á sameiginlegt hlaðborð þeirra inni í skólastofunni. Þeir sem áttu leið framhjá duttu í lukkupottinn því þeir fengu að gæða sér á öllum kræsingunum. Krakkarnir voru að fagna góðu starfi undanfarnar vikur og væntanlegu vetrarfríi. Vetrarfrí er í […]

Lesa meira

Reykjafarar

Reykjafarar eru lagðir af stað og eru væntanlegir kl. 14 – 14:30.

Lesa meira

Lífið á Reykjum

Nemendur á Reykjum halda dagbók. Hér kemur dæmi frá nemanda, birt með góðfúslegu leyfi. Dagur 2 á Reykjum Ég vaknaði seint á eftir hinum. Ég fór og fékk mér hafragraut og fór í tíma. Ég byrjaði í „undraheimi auranna“ og lærði margt um peninga og lán til dæmis debet- og kreditkort, lán og vexti. […]

Lesa meira

Furðulegar kveðjur frá Reykjum

Stórundarlegir atburðir áttu sér stað á kvöldvöku á Reykjum í gærkvöldi. Menn breyttust í konur, börn breyttust í gulrætur, ungur drengur át 5 mjólkurkex á minna en mínútu og einhverjir fengu kalda sturtu  úti á miðju gólfi. Spenningurinn er engu minni fyrir kvöldvökuna í kvöld. Hvað gerist næst???Annars er lítill tími til að skrifa fréttir, það […]

Lesa meira

Stuðkveðjur frá Reykjum

Dagurinn í dag er búinn að vera hreint frábær. Veðrið er gott, logn og 2-3 stiga frost. Krakkarnir una sér við leik og störf og hér er bros á hverju andliti. Kennararnir eru ótrúlega ánægðir með gemlingana sína, kvöldið gekk vel og voru krakkarnir endurnærðir í morgun og tóku vel til matar síns. Í […]

Lesa meira

Bestu kveðjur frá Reykjum

Nú eru reykjalingarnir komnir á áfangastað. Ferðin gekk vel þrátt fyrir rok og rigningu. Gert var stutt stopp í Borgarnesi til að pissa og teygja úr sér. Nú eru krakkarnir komnir í sína hópa og andinn í hópnum mjög góður, allir hressir og láta ekki bleytu og vind á sig fá. Skoðið heimasíðu Skólabúðanna á […]

Lesa meira

Húllað, hoppað og skákir tefldar

karpov_og_hilmir
Á seinni degi fjölgreindaleika gekk allt eins og í sögu. Í íþróttahúsinu var húllað og hoppað af miklum móð, klifrað upp í rjáfur, boltar látnir skoppa og handleggir jafnvel lengdust um mun t.d. á "hanga á slá" stöðinni. Sums staðar reyndi svo sannarlega á kunnáttu í landafræði og á einum stað var kannað hversu gott þreifiskynið væri hjá krökkunum. Í sjálfu skólahúsnæðinu var t.d. jóga iðkað, sögur skrifaðar, danssporin tekin, á einni stöðinni reyndi mjög á leikhæfileika að ógleymdri skákstöðinni. Á þeirri stöð tók skáksnillingurinn Birkir Karl á móti liðunum og skoraði á þau að tefla við sig. En ekki langt frá þeirri stöð vildi svo vel til að sat annar skáksnillingur, reyndar fv. heimsmeistari Anatolí Karpov, og tefldi við einn af nemendum skólans, Hilmi Frey. Karpov er hér á landi vegna 111 ára afmælis Taflfélags Reykjavíkur og heimsótti skólann okkar í leiðinni og tók nokkrar skákir. Ekki eru allir jafnheppnir og við að fá heimsmeistarann sjálfan í heimsókn.
Hér eru MYNDIR FRÁ FJÖLGREINDALEIKUM: Degi 2 og einnig frá heimsókn Karpovs.

Lesa meira

Stóra trambólínið er svo skemmtilegt

Fréttasnápur GREINDARLEGRA FRÉTTA hitti nokkra krakka á púslstöðinni snemma morguns. Þau voru hress og kát og er þau voru innt eftir því hvað væri skemmtilegasta stöðin á fjölgreindaleikunum hingað til nefndu þau nokkur stóra trambólínið. Ein stelpan sagði þó að kaðlaklifrið vera nokkuð skemmtilegt en maður þyrfti að passa sig að „brenna sig“ ekki á […]

Lesa meira

Myndir frá fjölgreindaleikum: Dagur 1

Með því að smella á heitin má skoða myndir frá fjörugum fjölgreindaleikum í Salaskóla. Stöðvar og þrautir Sérkennilegir stöðvarstjórar o. fl.

Lesa meira