Vetrarleyfi 23. og 24. febrúar

Mánudaginn 23. og þriðjudaginn 24. febrúar er vetrarleyfi í grunnskólum Kópavogs. Engin starfsemi er í Salaskóla þessa daga. 

Lesa meira

Öskudagurinn í Salaskóla

Öskudagur verður með hefðbundnum hætti í Salaskóla. Nemendur mæta á bilinu 8:10 - 9:00 í skólann, en kl. 9:00 eiga allir að vera komnir til umsjónarkennara.

Lesa meira

Úrslitamót yngsta stigs í skák

Úrslitamót yngsta stigs Salaskóla í skák fór fram föstudaginn 13. febrúar. Efstur á þessu móti varð Gunnar Erik Guðmundsson 2b. Maríuerlum en hann sigraði alla sína andstæðinga. Hér má sjá nánari úrslit. Úrslitin liggja nú fyrir, efstu fjórir úr hverjum árgangi komast áfram á lokamótið nema úr 3. bekk fara efstu fimm. Föstudaginn 6. mars verður […]

Lesa meira

Skólaþing í Salaskóla

Skólaþing var haldið í Salaskóla í gær, 12. febrúar. Nemendur úr 5. – 10. bekk settust saman í blönduðum aldurshópum og ræddu ýmis málefni er tengjast skólanum. Margar góðar niðurstöður fengust sem nú er verið að vinna úr og verða kynntar síðar. Sjá nánar um skólaþingið á fésbókarsíðu Salaskóla.

Lesa meira

Niðurstöður ytra mats á Salaskóla liggja fyrir

Skýrsla um ytra mat á Salaskóla sem framkvæmt var í haust var að koma í hús. Hún er komin hér á heimasíðuna. Er undir Skólinn - mat á skólastarfi og nokkuð neðarlega á þeirri síðu. Í bréfi sem Námsmatsstofnun sendi foreldrum í gær voru helstu niðurstöður tíundaðar. Þar segir: 

"Eins og ykkur er kunnugt var starf við skólann metið nýlega með ytra mati. Matið unnu matsmenn á vegum Námsmatsstofnunar fyrir mennta- og menningarmálaráðuneytið og Samband íslenskra sveitarfélaga.

Lesa meira

Skýrsla um ytra mat á Salaskóla 2014

Haustið 2014 stóð Mennta- og menningarmálaráðuneytið fyrir úttekt á starfi Salaskóla. Úttektin var framkvæmd af Námsmatsstofnun. Niðurstöður úttektarinnar er að finna í Skýrslu um ytra mat á Salaskóla 2014  

Lesa meira

Skólaþing

Á fimmtudaginn, 12. febrúar, ætlum við að halda Skólaþing með nemendum í 5. – 10. bekk. Þá skiptum við krökkunum í þessum bekkjum í ca 50 hópa og koma hópstjórar úr elstu bekkjunum. Fyrst verður stuttur sameiginlegur fundur og svo verða umræður í hópunum um ýmis mál sem snerta nám, skipulag, félagslíf, o.fl. Allt […]

Lesa meira

Úrslitin úr úrtökumóti unglingastigs – vegna meistaramóts Salaskóla í skák 2015.

Úrslitamót unglingastigs fór fram sl. föstudag og efstur á þessu móti varð Róbert Örn Vigfússon úr 8. bekk en hann sigraði alla sína andstæðinga. Hér má sjá nánari úrslit.  Úrslitin liggja nú fyrir, efstu 4 úr hverjum árgangi komast áfram á lokamótið nema úr 10. bekk fara efstu 6. Þátttaka og skákáhugi í 10 […]

Lesa meira

Hundraðdagahátíðin í 1. bekk

100 dagar
Í dag eru fyrstubekkingarnir okkar búnir að vera 100 daga í skólanum og af því tilefni var haldið upp á daginn með hundraðdagahátíð. Þá er nú margt gert sér til skemmtunar og mikið um að vera.

Lesa meira

Innritun nemenda fyrir næsta skólaár

Hinir árlegu innritunardagar í grunnskóla Kópavogs verða 2. og 3. mars nk. Þá innritum við verðandi 1. bekkinga og svo aðra nemendur sem eru að flytjast á milli skólahverfa. Nánar auglýst síðar.

Lesa meira

Salaskólastelpur tóku silfrið

Salaskóli tók silfur á íslandsmóti stúlknasveita í skák á laugardaginn. Athygli vekur að þrjár systur skipuðu efstu þrjú borðin í liðinu okkar og ein góð skólasystir á fjórða borði. Þær sigruðu alla hina skólana nema meistaralið Rimaskóla. En stundum er gott silfur gulli betra.   Lið Salaskóla var skipað eftirfarandi stúlkum:1b. Hildur Berglind Jóhannsdóttir 10. b kjóar2b. Þórdís […]

Lesa meira