Undanrásir fyrir meistaramót Salaskóla í skák hófust á föstudaginn

Alls kepptu 47 krakkar úr 5. til 7. bekk. Hér eru úrslit úr þeim viðureignum. Efstu fjórir úr hverjum árgangi fá síðan að keppa í úrslitakeppninni „ Meistari meistaranna“ sem verðu í lok febrúar. En þar sem gífurlegur skákáhugi er í 6. bekk þá fá þeir 2 aukafulltrúa á lokamótið. Greinilegt er að þeir sem stunda skákina […]

Lesa meira

Flott stelpuskákmót í Salaskóla

Stelpuskákmót var haldið í Salaskóla í dag, föstudag, til að finna sterkustu skákstelpurnar vegna Íslandsmóts stúlkna sem verður um næstu helgi. Sveitakeppni stúlkna verður 31. janúar og Íslandsmót stúlkna 1.febrúar. Alls kepptu 26 Salaskólastelpur úr 2. til 10. bekk. Sigurvegari varð Hildur Berglind Jóhannsdóttir úr 10. b. Í öðru sæti Þórdís Agla Jóhannsdóttir úr 3. b. Í þriðja sæti Rakel Tinna […]

Lesa meira

Skráning í foreldraviðtölin

Skráning í foreldraviðtölin sem verða mánudaginn 26. janúar, hefst í fyrramálið – föstudaginn 16. janúar. Lýkur þriðjudaginn 20. janúar. Farið inn í mentor og gangið frá þessu þar.

Lesa meira

Breyting á gjaldskrám

Nýjar gjaldskrár taka gildi frá 1. janúar 2015

Mötuneyti
Verð á máltíð í mötuneytum grunnskóla er 420 krónur frá 1. janúar 2015 

Dægradvöl
Gjaldskrá í dægradvöl frá 1. janúar 2015

Lesa meira

Liltu-jólin og jólaleyfi

IMG 2470
Nemendur í 1. - 7. bekk mættu á jólaball þennan morguninn og áttu skemmtilega stund við jólatréð ásamt hljómsveitinni Jólakúlunum. Á ballið mætti jólasveinn sem sagðist vera tvíburabróðir Stúfs nema hann var miklu lengri og kallaði sig Uppstúf! Hann var fjörugur og skemmtilegur og hlátrasköllin ómuðu.

Lesa meira

Jólaböllin í dag

Jólaböllin í dag: Kl. 9 – Starar, sandlóur, sólkríkjur, tjaldar, flórgoðar, langvíurKl. 10 – Stelkar, steindeplar, músarrindlar, vepjur, himbrimar, svölur, kríurKl. 11 – sendlingar, glókollar, maríuerlur, tildrur, lómar, súlur, ritur Mæta í sínu stofu og svo er marserað í salinn og dansað í kringum jólatréð

Lesa meira

Jólaþorpið 2014

Nemendur í  8. bekk hafa undanfarna þematíma unnið að jólaþorpi sem nú er risið fyrir framan bókasafn skólans. Það hefur upp á flest það að bjóða sem prýða má slíkt þorp, s.s. skóla, vita, bryggju, báta, lest, kikrju, skíðabrekku, skóg, jólasveina og að sjálfsögðu fólk af öllum stærðum og gerðum. Nemendur hafa verið áhugasamir […]

Lesa meira

Bekkjarmóti í skák lokið

bekkjarmot
Alls kepptu 174 krakkar í undanrásum sem er nýtt met í sögu Salaskóla. Á úrslitamótið komust aðeins 4 efstu lið úr hverju aldurshólfi (2.-4. b)  (5.-7. b) og (8.-10. b) ásamt sérstökum gestum sem voru kvennalið að æfa sig fyrir Íslandsmót stúlknasveita sem verður í lok janúar 2015. Mótsstjóri var Tómas Rasmus. Honum til aðstoðar Pétur Ari Pétursson 6. b. og Sandra Björk Bjarnadóttir 10. b.

Lesa meira

Valgreinar á vorönn

 Nú eiga nemendur í 8. – 10. bekk að velja valgreinar fyrir vorönnina. Námskeiðslýsingar eru í þessu skjali: Val á vorönn 2015. Þurfið sennilega að smella á download til að fá skjalið. Farið svo á þennan tengil og veljið; https://www.surveymonkey.com/s/8HS3YJL Athugið að þetta þarf að klára í síðasta lagi á hádegi fimmtudagsins 18. desember. 

Lesa meira

Hátíðleg stund

lusia2Á morgun er svokölluð Lúsíumessa. Í Salaskóla er hefð að farin sé Lúsíuganga í tengslum við þennan dag sem einmitt fór fram í morgun, föstudaginn 12. desember. Þetta er hátíðleg stund þar sem við njótum fallegs söngs og kertaljósa á göngum skólans.

Lesa meira

Gaman að forrita

code
Músarrindlarnir komu í tölvuver í dag til að taka þátt í verkefninu "The Hour of Code" eða Klukkustund kóðunar eins og það útleggst á íslensku. Um er að ræða viðburð á heimsvísu sem stendur í eina viku frá 8.  til 14. desember. 

Lesa meira

Lestrarkeppni á miðstigi lokið

Spurningakeppninni Lesum meira lauk í vikunni með því að súlur og svölur kepptu til úrslita. Súlurnar mörðu sigur með einu stigi á svölurnar og fá því bikar keppninnar til varðveislu í eitt ár. Veitt voru bókaverðlaun fyrir fyrsta og annað sætið. Allir bekkir fengu viðurkenningarskjal þar sem þeim var þökkuð þátttaka í keppninni. Stuðningslið […]

Lesa meira