Skíðaferð 7. og 8. bekkja

Þriðjudaginn 26. febrúar fara 7. og 8. bekkur í skíðaferð í Bláfjöll. Lagt verður af stað frá skólanum kl. 9:10 og nemendur eiga því ekki að mæta fyrr en þá. Lagt af stað úr Bláfjöllum kl. um kl. 15:00. Smellið á "lesa meira" til að fá nánari upplýsingar.

 

Þriðjudaginn 26. febrúar fara 7. og 8. bekkur í skíðaferð í Bláfjöll. Lagt verður af stað frá skólanum kl. 9:10 og nemendur eiga því ekki að mæta fyrr en þá. Lagt af stað úr Bláfjöllum kl. 15:30.

Matur

Við sjáum um samloku í hádeginu en annað nesti þurfa nemendur að koma með. Drykki og svoleiðis.

Klæðnaður

Allir verða að koma vel klæddir og með nóg af hlýjum aukafötum.  Ekki gleyma húfum, vettlingum og ullarsokkum.

Kostnaður

Skólinn borgar rútukostnað en nemendur greiða sjálfir lyftukort og fyrir leigu á skíðabúnaði, ef um slíkt er að ræða. Verð fyrir daginn er 2000 kr. fyrir skíða-  eða brettapakka. Lyftukortið er á 400 kr. Það verða líklega margir í Bláfjöllum á morgun og getur orðið bið í leigunni. Þeir sem geta fengið búnað hjá ættingjum

Skíðakennsla fyrir alla

Við verðum með margreynda úrvals skíðakennara með okkur sem kennir bæði byrjendum og lengra komnum. 

Aðstoð foreldra

Aðstoð foreldra er mjög vel þegin. Fínt er ef einhverjir vilja koma og vera allan tímann, en ekki síður gott að fá aðstoð hluta af tímanum.  Þeir sem ætla að bjóða fram krafta sína hafi samband við skrifstofu skólans – sími 570 4600 eða sendi tölvupóst á asdissig@kopavogur.is. 

Fararstjórar

Nokkrir kennarar og starfsmenn Salaskóla fara með og aðstoða nemendur eftir því sem þörf er á. 

Reglur

Í skíðaferðinni gilda skólareglur. Nemendur verða að fara eftir þessum reglum og hlýða kennurum og starfsmönnum. Verði misbrestur á því er tafarlaust hringt í foreldra og þeir beðnir um að sækja barn sitt.  Skiljið GSM – síma eftir heima, það er mikil hætta á að týna þeim. Sama má segja um ipod. Hver og einn ber ábyrgð á sínum farangri og ef eitthvað týnist ber nemandinn sjálfur fulla ábyrgð á því.

Upplýsingar

Hafið samband ef eitthvað er óljóst og þið óskið frekari upplýsinga.

Birt í flokknum Fréttir.