Category Archives: Fréttir
Erlendir gestir
Þessa viku hafa þau Marcus frá Svíþjóð og Renata frá Portúgal verið hjá okkur í Salaskóla að kynna sér skólastarfið. Þau starfa við skólastjórnun í sínum skólum. Þau hafa fylgst með kennslu og skólastarfinu almennt lært ýmislegt sem þau ætla að taka með sér heim, en einnig hafa þau miðlað mörgu góðu til okkar. Það er gott að fá gesti og sannast þá hið fornkveðna að „glöggt er gests augað.“
Upplestrarkeppnin í 7. bekk
Í morgun var síðasti liðurinn í upplestrarkeppninni í 7. bekk haldinn hjá okkur í Salaskóla. 12 keppendur lásu upp fyrir fullum sal af fólki og satt best að segja stóðu þeir sig ótrúlega vel. Mættu vel undirbúnir og virkilega skemmtu salnum með vönduðum upplestri. Sumir þeirra bættu jafnvel um betur og fluttu frumsamin ljóð sem vöktu mikla hrifningu viðstaddra. Kæmi ekki á óvart að einhverjir þeirra eigi eftir að gera garðinn frægan sem ljóðskáld þegar fram líða stundir.
En dómnefnd varð að velja tvo nemendur og einn til vara sem munu keppa fyrir skólans hönd í Salnum í Kópavogi í upplestrarkeppni grunnskólanna í bænum þann 7. mars nk. Þeir sem völdust til þess voru: Guðjón Daníel og Matthildur og svo Díana Ósk til vara.
Morgunfundir stjórnenda
Vegna veikinda varð talsverð röskun á áætlun skólans um morgunfundi skólastjórnenda með foreldrum. Fundum með 10. bekk, 7. bekk, 6. bekk og 5. bekk þurfti að fresta og eru verið að finna nýja tíma fyrir þá.
En við höldum áætlun að öðru leyti og föstudaginn 15. febrúar verður fundur með foreldrum 3. bekkinga, 19. febrúar eru foreldrar 1. og 2. bekkinga og 20. febrúar foreldrar 4. bekkinga. Fundirnir byrja kl. 810 – 900.
Salaskóli Íslandsmeistari í skák í stúlknaflokki 3.-5. bekkja!
Skákmótið fór fram í Rimaskóla um helgina og fóru tvö stúlknalið á mótið í þessum aldursflokki frá Salaskóla. Alls tóku 8 lið þátt í þessum flokki og tefldu þau öll innbyrðis. Svo fór að A-lið Salaskóla fékk 25 vinninga af 28 mögulegum og var einum vinningi á undan Rimaskóla. Glæsilegur árangur! B-liðið stóð sig líka vel, en þar voru mest yngri stúlkur og reynsluminni, en þær urðu í 6. sæti. Skákstelpurnar í Salaskóla eru bestar! Gaman var að Jóhanna Björg fyrrverandi skákstjarna skólans var meðal skákstjóra á mótinu!
A-liðið var þannig skipað: Katrín María Jónsdóttir, Arey Amalía Sigþórsdóttir, Sesselja Kjartansdóttir, Halla Marín Sigurjónsdóttir (allar í 5. b.) og Berglind Edda Birkisdóttir (4.b.).
B-liðið: Elín Lára Jónsdóttir (3.b), Rakel María Pálsdóttir (5.b.), Rakel Lára Rúnarsdóttir og Katrín Þóra Sveinsdóttir (báðar í 3.b.).
Vetrarleyfi næsta skólaár
Í gær samþykkti menntaráð Kópavogs eftirfarandi vetrarleyfisdaga á næsta skólaári:
21. og 22. október
5. og 6. mars
Allir grunnskólar Kópavogs könnuðu afstöðu foreldra til þess hvort foreldrar vildu heldur tvo daga á hvorri önn eða fjóra daga einu sinni á vetri. Niðurstaðan var alls staðar svipuð, rúmlega 50% vildu tvo daga á hvorri önn eins og verið hefur.
Frítt forritunarnámskeið
Laugardaginn 16. febrúar
kl.10:00 – 15:00
- Opið öllum grunnskólanemendum í 8. – 10. bekk
- Fyrir þá sem vilja kynnast forritun
- Góður undirbúningur fyrir forritunarkeppni grunnskólanna
- Fríar pizzur í hádeginu
Hvað mun ég læra?
- Grunnatriði forritunar með Python
- Kóðað í textaham
Hverjir kenna?
- Nemendur á tölvubraut Tækniskólans
- Kennarar á tölvubraut Tækniskólans
Skráning á Kóðun
Morgunfundir stjórnenda með foreldrum
Stjórnendur Salaskóla boða foreldra í hverjum árgangi til morgunfunda á næstu vikum. Á fundunum verður rætt um skólastarfið almennt og foreldar koma góðum hugmyndum sínum á framfæri. Fundirnir verða sem hér segir að öllu óbreyttu:
5. febrúar – 9. bekkur
6. febrúar – 8. bekkur
7. febrúar – 10. bekkur
8. febrúar – 7. bekkur
12. febrúar – 6. bekkur
13. febrúar – 5. bekkur
15. febrúar – 3. bekkur
19. febrúar – 1. og 2. bekkur
20. febrúar – 4. bekkur
Fundirnir hefjast kl. 8:10 og standa til kl. 900. Við leggjum mikla áherslu á að allir mæti og taki þátt í mikilvægri umræðu um skólastarf barnanna sinna.