Afar vel hefur gengið á Fjölgreindaleikum Salaskóla í þá tvo daga sem þeir hafa staðið yfir. Krakkarnir fara á milli stöðva sem eru staðsettar á mörgum stöðum inni í skólahúsnæðinu og einnig í íþróttahúsinu. Alls eru um 40 stöðvar í gangi sem reyna á hinar ýmsu fjölgreindir – það eru ekki allir góðir í öllu svo mikið er víst. Sumir eru ferlega góðir í stígvélakasti eða kaðlaklifri, á meðan aðrir eru betri í að þekkja fugla, umferðarmerki eða leika orð. Í hverju liði eru 10 krakkar og þegar eldri sem yngri leggja saman getur úkoman verið býsna góð. Áberandi er hvað fyrirliðar standa sig vel að, þeir eru afar ábyrgir, hjálpsamir og hvetja þá sem yngri eru áfram. Oftast skapast mikil liðsheild innan liða sem er aðdáunarverð. Skoðið myndir frá seinni deginum.
Author Archives: Logi
Fyrri dagur Fjölgreindaleika: Hvar er starfsfólkið?
Myndir frá fyrsta degi leikanna
Myndir: Óboðnir gestir – eða hvað?
Þegar nemendur komu í skólann í morgun, á fyrsta degi Fjölgreindaleika Salaskóla, virtist enginn af starfsfólkinu vera mættur. Í stað þeirra var afar sérkennilegt lið á ferð um skólann, sumir prúðbúnir, aðrir afar druslulegir og inn á milli sáust dýr í uppréttri stöðu. Í einni skólastofunni var Pavarotti, stórsöngvari, að lesa upp nemendur með sjálfan sig glymjandi í græjunum. Hann var greinilega í forföllum fyrir Jóhönnu Björk, kennara. Þetta skrautlega og sérkennilega lið hafði greinilega yfirtekið skólann þennan morguninn – það fór ekki á milli mála. Var starfsfólk skólans kannski á námskeiði í dag? Þarna mátti koma auga á Kolbein kaftein, Chaplin, Valla, Línu langsokk auk spænskrar senjórítu,
skurðlækna, golfara, vísindamanns, mótórhjólatöffara og þannig mætti lengi telja. Nunna með maskara (… má hún vera með maskara?) sást á hlaupum og virtist vera að stjórna einhverju mikilvægu á göngum skólans. Hvað skyldi það vera? Nemendur skólans voru sallarólegir yfir þessu ástandi og tóku óboðnu gestunum vel og gáfu sig meira að segja á tal við þá. En þá var hringt inn til 12. Fjölgreindaleika Salaskóla og allir virtust vita hvað þeir áttu að gera – líka óboðnu gestirnir en ekkert sást ennþá til starfsfólksins.
Nýtum það sem til er, vinnum saman hvar sem er (BYOD)
Skólaárið 2014-2015 fékk Salaskóli styrk úr Sprotasjóði vegna verkefnisins „Nýtum það sem til er, vinnum saman hvar sem er.“ Verkefnið snýst um að nemendur í unglingadeild geti komið með sín eigin snjalltæki og notað í námi sínu. Þá er átt við síma, spjaldtölvur og fartölvur. Logi Guðmundsson var verkefnisstjóri. Skýrslu um verkefnið er að finna hér.
Rafrænn skóli – nútímaskóli (notkun spjaldtölva í kennslu)
Skólaárið 2012 – 2013 fékk Salaskóli styrk úr Sprotasjóði vegna verkefnisins „Rafrænn skóli – nútímaskóli“. Skýrslu um verkefnið má fá með því að smella hér.
Þemavinna í 7. – 10. bekk
Skólaárið 2010 – 2011 fékk Salaskóli styrk úr Sprotasjóði vegna verkefnisins „Þemavinna í 7. – 10. bekk“. Skýrslu um verkefnið er hægt að nálgast með því að smella hér.
Myndir 2014-2015
Ágúst:
Skólasetning
September:
Norræna skólahlaupið
Útikennsla í september
Október:
Fyrri dagur fjölgreindaleika
Seinni dagur fjölgreindaleika
Starfsfólk á fjölgreindaleikum
Sjöundubekkingar á Reykjum
Lestrarkeppnin Lesum meira 2014
Nóvember:
Góðir gestir í nóvember
Dagur gegn einelti – heimsókn í leikskóla 9.-10. b.
Verðlaunafhending fyrir fjölgreindaleika
Desember:
Jólaþorpið 2014Litlu jólin 2014
Janúar – febrúar
Hundraðdagahátíðin í 1. bekk
Öskudagur 2015
Mars – apríl
Fyrstubekkingar – sýning fyrir foreldra
Heimsókn í leikskólann Rjúpnahæð – þemadagar
Júní
Hlaupið af krafti í norræna skólahlaupinu 2014
Myndir frá Norræna skólahlaupinu
Í dag, fimmtudaginn 11. september, fór Norræna skólahlaupið fram í Salaskóla en allir skólar á Norðurlöndunum geta tekið þátt í hlaupinu á hverju hausti. Í þessu hlaupi er lögð áhersla á holla hreyfingu og markmiðið er að sem flestir – helst allir- taki þátt. Það gerðu einmitt nemendur í Salaskóla, allir hlupu af stað, og krakkarnir sýndu mikinn dug og mikla elju og skemmtileg stemning skapaðist í kringum hlaupið.
Krakkarnir gátu valið um mismunandi vegalengdir 2,5, 5 km eða að fara 10 km en einn hringur var einmitt 2,5 km. Einhverjir fóru meira að segja 5 hringi sem gerir 12,5 km sem er vel af sér vikið. Að sjálfsögðu var drykkjarsstöð á leiðinni eins og í alvöru hlaupi. En það sem mestu máli skipti er að hver og einn stóð sig gríðarlega vel og fær nú viðurkenningarskjal þar sem greint er frá árangri. Til hamingju með flott hlaup, Salaskólakrakkar.
Forskóli tónlistarnáms
Undanfarin ár hefur skólinn boðið nemendum í 2. bekk upp á flautunám í litlum hópum beint eftir skóla. Þetta geta öll 7 ára börn nýtt sér hvort sem þau eru í dægradvölinni eða ekki.
Kostnaði er stillt í hóf og hafa börn í dægradvöl einungis verið að borga fyrir flautu og námsefni, en ef það er til blokkflauta á heimilinu þá er sjálfsagt að nota hana.
Ef barnið er ekki í dægradvöl þá bætist við hófstillt námskeiðsgjald. Þetta tilboð hafa mörg börn nýtt sér sem stefna á að fara í tónlistarskóla og læra á hljóðfæri. Þarna læra þau grunnatriði í tónfræði og nótnalestri í gegnum hljóðfæraleik, hreyfingu, sköpun og verkefnavinnu.
Kennt verður í beinu framhaldi af skóla eða kl. 13: 35 – 14: 15. Foreldrar barna í 2. bekk hafa fengið nánari upplýsingar í tölvupósti.