valgeir_og_steinunn_001

Jóhannes úr Kötlum kynntur nemendum

valgeir_og_steinunn_001
Góðir gestir komu í skólann í dag til að heimsækja sérstaklega  nemendur í 6. og 7. bekk. Þau Valgeir Guðjónsson tónlistarmaður og Steinunn Jóhannesdóttir rithöfundur kynntu skáldið Jóhannes frá Kötlum með tali og tónum. Nemendur hlustuðu með athygli, hrifust með söngnum og voru áreiðanlega  margs vísari á eftir.  Ávallt er gaman að fá ljúfa heimsókn sem þessa og brjóta upp hversdagsleikann og er þeim Valgeiri og Steinunni færðar þakkir fyrir. Einhverjir nemendanna munu síðan halda áfram að fjalla um kveðskap Jóhannesar frá Kötlum í skólanum. 

Birt í flokknum Fréttir.