Nýir nemendur Salaskóla, aðrir en þeir sem fara í 1. bekk, eru boðnir í heimsókn og skólaskoðun fimmtudaginn 18. ágúst kl. 11:30. Foreldrum þeirra að sjálfsögðu einnig.
Category Archives: Fréttir
Skólasetning
Salaskóli verður settur mánudaginn 22. ágúst. Nemendur mæta sem hér segir:
2., 3. og 4. bekkir kl. 9:00
5., 6. og 7. bekkur kl. 10:00
8., 9. og 10. bekkur kl. 11:00
Nemendur sem eru að fara í 1. bekk verða sérstaklega boðaðir með foreldrum sínum dagana 22. og 23. ágúst. Kennsla skv. stundaskrá hefst í 1. bekk miðvikudaginn 24. ágúst. Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 23. ágúst.
Video
bo_videojs width=[640] height=[264] autoplay=[true] loop=[true] video_mp4=[http://video-js.zencoder.com/oceans-clip.mp4] video_webm=[http://video-js.zencoder.com/oceans-clip.webm] video_ogg=[http://video-js.zencoder.com/oceans-clip.ogg] flash=[http://video-js.zencoder.com/oceans-clip.mp4] image=[http://video-js.zencoder.com/oceans-clip.png]
Skólaslit og vorhátíð
Salaskóla verður slitið mánudaginn 6. júní kl. 13:00. Nemendur mæta í sínar kennslustofur og ganga þaðan í hátíðarsal skólans, Klettagjá, þar sem skólanum verður slitið. Að loknum skólaslitum hefst vorhátíð foreldrafélagsins og þar verður mikið húllumhæ og boðið upp á grillaðar pylsur að venju. Nemendur eiga ekki að mæta í skólann fyrr en kl. 13:00 þennan dag, en dægradvölin er opin frá kl. 8:00 og fram að skólaslitum.
Útskrift 10. bekkinga
Útskrift nemenda í 10. bekk í Salaskóla fer fram við hátíðlega athöfn miðvikudaginn 1. júní kl. 20:00. Tónlistarmenn úr röðum 10. bekkinga flytja tónlistaratriði og fulltrúar nemenda flytja ávörp. Að lokinni athöfn bjóða foreldrar upp á kaffi og kökur.
Foreldrar mæta með nemendum og afar og ömmur eru einnig velkomin.
Hviss og búmmm….

Krakkarnir í 9 og 10 bekk hönnuðu þurrísrakettur í eðlisfræðitíma hjá Tómasi í dag og skutu þeim upp í himininn. Hæstu geimskotin náðu um 10 metrum upp frá jörðinni og tókst því að yfirvinna þyngdarafl jarðar í smá stund. Eldsneytið á flaugarnar var venjulegt kranavatn og þurrís. Myndir frá þessum atburði er að finna í myndasafni skólans.

