
Afar vel hefur gengið á Fjölgreindaleikum Salaskóla í þá tvo daga sem þeir hafa staðið yfir. Krakkarnir fara á milli stöðva sem eru staðsettar á mörgum stöðum inni í skólahúsnæðinu og einnig í íþróttahúsinu. Alls eru um 40 stöðvar í gangi sem reyna á hinar ýmsu fjölgreindir – það eru ekki allir góðir í öllu svo mikið er víst. Sumir eru ferlega góðir í stígvélakasti eða kaðlaklifri, á meðan aðrir eru betri í að þekkja fugla, umferðarmerki eða leika orð. Í hverju liði eru 10 krakkar og þegar eldri sem yngri leggja saman getur úkoman verið býsna góð. Áberandi er hvað fyrirliðar standa sig vel að, þeir eru afar ábyrgir, hjálpsamir og hvetja þá sem yngri eru áfram. Oftast skapast mikil liðsheild innan liða sem er aðdáunarverð. Skoðið myndir frá seinni deginum.
Category Archives: Fréttir
Fyrri dagur Fjölgreindaleika: Hvar er starfsfólkið?

Myndir frá fyrsta degi leikanna
Myndir: Óboðnir gestir – eða hvað?
Þegar nemendur komu í skólann í morgun, á fyrsta degi Fjölgreindaleika Salaskóla, virtist enginn af starfsfólkinu vera mættur. Í stað þeirra var afar sérkennilegt lið á ferð um skólann, sumir prúðbúnir, aðrir afar druslulegir og inn á milli sáust dýr í uppréttri stöðu. Í einni skólastofunni var Pavarotti, stórsöngvari, að lesa upp nemendur með sjálfan sig glymjandi í græjunum. Hann var greinilega í forföllum fyrir Jóhönnu Björk, kennara. Þetta skrautlega og sérkennilega lið hafði greinilega yfirtekið skólann þennan morguninn – það fór ekki á milli mála. Var starfsfólk skólans kannski á námskeiði í dag? Þarna mátti koma auga á Kolbein kaftein, Chaplin, Valla, Línu langsokk auk spænskrar senjórítu,
skurðlækna, golfara, vísindamanns, mótórhjólatöffara og þannig mætti lengi telja. Nunna með maskara (… má hún vera með maskara?) sást á hlaupum og virtist vera að stjórna einhverju mikilvægu á göngum skólans. Hvað skyldi það vera? Nemendur skólans voru sallarólegir yfir þessu ástandi og tóku óboðnu gestunum vel og gáfu sig meira að segja á tal við þá. En þá var hringt inn til 12. Fjölgreindaleika Salaskóla og allir virtust vita hvað þeir áttu að gera – líka óboðnu gestirnir en ekkert sást ennþá til starfsfólksins.

Fjölgreindaleikar Salaskóla 1. og 2. október
12. fjölgreindaleikar Salaskóla fara fram á miðvikudag og fimmtudag, 1. og 2. október. Þá er nemendum skipt í 10 manna lið sem keppa í margskonar greinum sem reyna á ólíkar greindir nemenda. Liðsstjórar koma úr 9. og 10. bekk og þeir sjá alveg um sinn hóp þessa daga. Báða daga eiga nemendur að mæta kl. 8:10 hjá sínum kennara en fara þaðan í hópinn sinn.
Nemendur eiga ekki að koma skólatöskur, en þurfa að hafa nesti með fyrir kaffitímann og gott að hafa það í litlum bakpoka sem þau bera með sér allt sem þau fara. Athugið að ekki eru ávextir í skólanum þessa daga. Við útvegum svala fyrir kaffitímann. Krakkarnir fá svo að borða í mötuneytinu í hádeginu. Skólinn er búinn hjá öllum um hálftvö.
Ekki er sund eða valgreinar þessa daga – bara fjölgreindaleikarnir.
Skóladagatal 2014-2015
Skóladagatal Salaskóla hefur verið samþykkt í skólanefnd og það má sjá hér. Athugið að í næstu viku, 9. október er foreldraviðtalsdagur og skipulagsdagur daginn eftir.
Nýtum það sem til er, vinnum saman hvar sem er (BYOD)
Skólaárið 2014-2015 fékk Salaskóli styrk úr Sprotasjóði vegna verkefnisins „Nýtum það sem til er, vinnum saman hvar sem er.“ Verkefnið snýst um að nemendur í unglingadeild geti komið með sín eigin snjalltæki og notað í námi sínu. Þá er átt við síma, spjaldtölvur og fartölvur. Logi Guðmundsson var verkefnisstjóri. Skýrslu um verkefnið er að finna hér.
Rafrænn skóli – nútímaskóli (notkun spjaldtölva í kennslu)
Skólaárið 2012 – 2013 fékk Salaskóli styrk úr Sprotasjóði vegna verkefnisins „Rafrænn skóli – nútímaskóli“. Skýrslu um verkefnið má fá með því að smella hér.
Þemavinna í 7. – 10. bekk
Skólaárið 2010 – 2011 fékk Salaskóli styrk úr Sprotasjóði vegna verkefnisins „Þemavinna í 7. – 10. bekk“. Skýrslu um verkefnið er hægt að nálgast með því að smella hér.

