uppl2.jpg

Upplýsingatækni

Upplýsingaverið er alhliða upplýsingamiðstöð skólans.  Það er sett saman af bókasafni, tölvustofum og kennslugagnamiðstöð kennara. 

Starfsfólk í upplýsingaveri sinnir m.a.
útláni bóka til nemenda og starfsfólks
útláni kennslugagna til kennara  s.s. kennsluleiðbeiningar, kennsluforrit og kennarahandbækur  útláni tækja s.s. myndavéla, upptökutækja, skanna
ráðgjöf til kennara  um notkun upplýsingatækni í kennslu
umsjón með tölvukosti skólans
kennslu nemenda í tölvufærni og upplýsingalæsi
endurmenntun kennara

Úr aðalnámskrá í upplýsinga- og tæknimennt frá 2007:
Upplýsingamennt er þverfagleg að því leyti að áhersla er lögð á að kenna og leiðbeina nemendum um sérstaka aðferð og tækni við öflun, úrvinnslu og miðlun upplýsinga í tengslum við annað nám nemenda.  

Með því að gera upplýsingamennt þannig í senn að sjálfstæðum þætti í námi og samþættum við annað nám er verið að ýta undir þann skilning með nemendum að upplýsingalæsi er sérstök aðferð til að afla sér af sjálfsdáðum þekkingar og færni á ólíkum sviðum. Mikilvægt er að viðkomandi faggreinakennari beri ábyrgð á þessum þætti kennslunnar. 

Hlutverk kennarans í upplýsingamennt getur verið með ýmsu móti í þessu ferli, allt frá því að vera til staðar á skólasafni eða tölvuveri til aðstoðar nemendum ef svo ber undir, yfir í það að vinna náið með faggreinakennara að upplýsingaverkefnum.     

uppl2.jpg  

 

 

 

 

 

 

 

Nokkrir punktar:

Mikilvægt er að venja nemendur á tölvur frá upphafi skólagöngu.

440950a.jpg

Skáksveit Salaskóla sigursæl í Namibíu

 

440950a.jpgBörnin í heimsmeistaraliði Salaskóla í skólaskák hafa verið mjög sigursæl á mótum í Namibíu þar sem þau eru á ferðalagi. Liðið tók þátt í Namibíumeistaramóti skólasveita sem gestalið og lagði alla andstæðinga sína, sjö að tölu, og hlaut 27 vinninga af 28 mögulegum.

Þá stóð Patrekur Maron Magnússson uppi sem sigurvegari í einstaklingskeppni þar sem keppendur voru 17 talsins. Hrannar Baldursson, annar fararstjóra hópsins, segir frá þessu á bloggsíðu sinni, http://don.blog.is/blog/don/..

Heimsmeistararnir ungu eru í Namibíu á vegum Þróunarsamvinnustofunar Íslands og Kópavogsbæjar en ÞSSÍ hefur verið með skákverkefni í Namibíu undanfarin ár í samvinnu við Skáksamband Íslands og Hrókinn. Verkefni hefur einkum haft það markmið að glæða skákáhuga meðal grunnskólabarna.

Íslenska sveitin er væntanleg heim á föstudag.

Veftré

 

 Forsíða Skólinn   Skólanámskrá  Þjónusta

 

 

  • Félagsmiðstöð
  • Dægradvöl
  • Mötuneyti
  • Sérkennsla
  • Námsráðgjöf
  • Bókasafn
  • Hjúkrunarfræðingar
 Gagnasafn  Myndasafn  Þróunarstarf  Foreldrar
  • Kannanir
  • Kennslufræði
  • Skólanámskrá
  • Matseðill

 

  •  Comeníus
  • Samstarf við KHÍ
  • Útikennsla
  • Grænfáninn
  • Foreldrafélag
  • Foreldraráð