Alþjóðlegur dagur downs-heilkennis

Á mánudaginn næsta þ.e. 21. mars er alþjóðlegur dagur downs heilkennis. Markmið dagsins er að auka vitund og minnka aðgreiningu. Dagsetningin er táknræn að því leyti að hún vísar til þess að Downs-heilkenni orsakast af auka litning í litningi 21, þ.e. 3 eintök af litning 21 – 21.03.

Í Salaskóla höldum við sérstaklega upp á þennan dag og hvetjum alla, bæði nemendur og starfsfólk, til að mæta í mislitum sokkum þennan dag og fagna fjölbreytileikanum á þann hátt.

Birt í flokknum Fréttir.