Vetrarleyfi verður 18. og 19. febrúar. Við vekjum athygli á að við erum með vetrarleyfi á öðrum tíma en aðrir skólar í Kópavogi. Þetta var ákveðið síðasta vor þar sem áhugi er á að hafa börnin í skólanum bolludag, sprengidag og öskudag. Á öskudag verður skóladagur þó styttri en venjulega. Þá verður furðufatadagur í skólanum og skemmtileg dagskrá fyrir alla nemendur frá kl. 9:00 – 12:00. Nemendur geta þó mætt til kennara sinna kl. 8:10, en við gefum svigrúm til kl. 9:00 svo tími sé til að koma sér í furðufötin.
Author Archive: Ásgerður Helga Guðmundsdóttir
Val í unglingadeild – 4. tímabil
Fjórða valtímabilið hefst mánudaginn 25. janúar og stendur til 12. mars. Nemendur geta valið núna og þurfa að klára það í síðasta lagi 19. janúar. Smellið hér til að velja.
Nýtt ár
Nýja árið fer vel af stað í Salaskóla. Krakkarnir koma kátir og hressir eftir góða hvíld í jólafríinu, staðráðin í að standa sig vel í námi og starfi.
Vekjum athygli á að skólanámskrá er nú komin inn á heimasíðuna, en hana hefur aðeins verið hægt að nálgast í gengum Mentor í haust.
Framundan er foreldraviðtalsdagur 22. janúar. Þá skilum við námsmati fyrir haustönnina.
Fljótlega verður foreldrum svo boðið í morgunkaffi með skólastjórnendum.
Jólaball
18. desember 2009 er gengið í kringum jólatréð í 1. – 7.bekk . Jólaballið tekur klukkustund. Nemendur mæta tímanlega í sínar bekkjarstofur þar sem kennarinn tekur á móti þeim og kemur með þau í röð á sal. Þessir bekkir mæta á jólaball klukkan 9:30 til 10:30: glókollar, starar, steindeplar, þrestir, lóur, teistur, helsingjar og ernir. Þessir bekkir mæta á jólaball klukkan 10:30 til 11:30: sólskríkjur, maríuerlur, hrossagaukar, lundar, hávellur, flógoðar, uglur og fálkar. Dægradvöl er opin þennan dag fyrir þau börn sem þar eru. Þeir sem ætla að nota dægradvöl þurfa að láta vita.
Jóladagatal grunnskólanna á www.umferd.is
Jólagetraun Umferðarstofu er með nýju sniði í ár. Á hverjum degi, frá 1. desember til 24. desember, geta grunnskólabörn svarað nýrri spurningu með því að opna jóladagatal á www.umferd.is og komist þannig í verðlaunapott.
Heppinn þáttakandi er dreginn út á hverjum degi og fær hann skemmtileg verðlaun.
Allir þátttakendur geta merkt svör sín með nafni bekkjar og skóla og komist þannig í sérstakan bekkjarverðlaunapott.
Nemendur og bekkir eru hvattir til að taka þátt í jóladagatalinu, sem er í senn skemmtilegt og fræðandi.
Hver veit – kannski vinnur bekkurinn þinn pítsuveislu!
Jóladagatalið verður á www.umferd.is frá 1. desember til 24. desember.
Feisbúkk og félagsleg vandræði
Ágætu foreldrar
Við höfum orðið vör við að mjög margir nemendur Salaskóla eru aðilar að „facebook“ netsamfélaginu. Eins og mörg ykkar þekkja býður þetta samfélag upp á ágætis samskipti af ýmsu tagi og fleira skemmtilegt. En dökku hliðarnar finnast líka og ég er hræddur um að þær komi einkum fram hjá börnum og unglingum. Í hverri einustu viku þurfum við hér í skólanum að taka á málum sem verða til í samskiptum nemenda á „facebook“. Þessi samskipti eiga nemendur eftir skóla og á kvöldin. Þetta getur t.d. verið þannig að einhver skráir eitthvað á „statusinn“ hjá sér og fær óviðurkvæmilegar athugasemdir frá einhverjum „facebook-vinum“. Komið hafa upp hörð orðaskipti, hótanir, niðurlægjandi tal, athugasemdir um útlit og geðslag og fleira í þeim dúr.
Þegar nemendur mæta svo í skólann morguninn eftir eru þeir í uppnámi og telja sig þurfa að gera upp sakir eða ljúka málum. Þegar svo er verður lítið um nám hjá viðkomandi. Kennarar hafa verið að taka á málum af þessu tagi og mörg þeirra lenda hjá skólastjórnendum og þarf oft mikla vinnu til að koma á sáttum og góðum friði.
Samskiptasamfélag af þessu tagi er oft of flókið og ögrandi fyrir þann þroska sem börn og unglingar búa yfir. Þau átta sig ekki á því að það sem þau skrifa sjá margir aðrir, það getur misskilist og það getur sært aðra og valdið miklum leiðindum. Svo eru þau líka að safna sem flestum „vinum“ og sumir sem óska eftir „vinfengi“ kunna að vera varasamir.
Ég vil biðja foreldra að hugleiða þessi mál og fylgjast með og skoða „facebook“ svæði barna sinna. Ábyrgð foreldra er mikil þegar kemur að netnotkun og mikilvægt er að leiðbeina börnum og unglingum hvernig á að ganga um í netsamfélagi eins og „facebook“.
Með kveðju – Hafsteinn Karlsson, skólastjóri