Hinir árlegu innritunardagar í grunnskóla Kópavogs verða 2. og 3. mars nk. Þá innritum við verðandi 1. bekkinga og svo aðra nemendur sem eru að flytjast á milli skólahverfa. Nánar auglýst síðar.
Category Archives: Fréttir
Salaskólastelpur tóku silfrið
Salaskóli tók silfur á íslandsmóti stúlknasveita í skák á laugardaginn. Athygli vekur að þrjár systur skipuðu efstu þrjú borðin í liðinu okkar og ein góð skólasystir á fjórða borði. Þær sigruðu alla hina skólana nema meistaralið Rimaskóla. En stundum er gott silfur gulli betra.
Lið Salaskóla var skipað eftirfarandi stúlkum:
1b. Hildur Berglind Jóhannsdóttir 10. b kjóar
2b. Þórdís Agla Jóhannsdóttir 3. b glókollar
3b. Elín Edda Jóhannsdóttir 6. b himbrimar
4b. Selma Guðmundsdóttir 6. b flórgoðar
Liðsstjóri var Tómas Rasmus.
Undanrásir fyrir meistaramót Salaskóla í skák hófust á föstudaginn
Alls kepptu 47 krakkar úr 5. til 7. bekk. Hér eru úrslit úr þeim viðureignum. Efstu fjórir úr hverjum árgangi fá síðan að keppa í úrslitakeppninni „ Meistari meistaranna“ sem verðu í lok febrúar. En þar sem gífurlegur skákáhugi er í 6. bekk þá fá þeir 2 aukafulltrúa á lokamótið. Greinilegt er að þeir sem stunda skákina skipulega ná bestum árangri og efstu sætin voru öll skipuð nemendum sem æfa í hverri viku í skákakademíu Kópavogs í Blikastúkunni sjá nánar hér.
Einnig tefla nokkrir á opnum mótum fyrir almenning og eru tveir kappar úr Salaskóla að keppa á Skákþingi Reykjavíkur og nokkrar stúlkur á Íslandsmóti stúlknasveita. Næsta föstudag þann 6. feb.2015 er stefnt á keppni hjá unglingadeildinni og viku síðar hjá yngstu krökkunum. Mótsstjóri á meistaramóti Salaskóla er Tómas Rasmus.
Flott stelpuskákmót í Salaskóla
Stelpuskákmót var haldið í Salaskóla í dag, föstudag, til að finna sterkustu skákstelpurnar vegna Íslandsmóts stúlkna sem verður um næstu helgi. Sveitakeppni stúlkna verður 31. janúar og Íslandsmót stúlkna 1.febrúar. Alls kepptu 26 Salaskólastelpur úr 2. til 10. bekk. Sigurvegari varð Hildur Berglind Jóhannsdóttir úr 10. b. Í öðru sæti Þórdís Agla Jóhannsdóttir úr 3. b. Í þriðja sæti Rakel Tinna Gunnarsdóttir úr 6. b. Mótsstjóri var Tómas Rasmus.
Nánari úrslit
Breyting á gjaldskrám
Nýjar gjaldskrár taka gildi frá 1. janúar 2015
Mötuneyti
Verð á máltíð í mötuneytum grunnskóla er 420 krónur frá 1. janúar 2015
Dægradvöl
Gjaldskrá í dægradvöl frá 1. janúar 2015
|
Samtals |
|
|
Allt að 20 klst á mán |
6.747 |
|
21-40 klst á mán |
11.808 |
|
41-60 klst á mán |
15.744 |
|
61-80 klst á mán |
18.555 |
|
Matargjald |
125 |
Breyting verður á systkinaafslætti frá 1. janúar 2015 þar sem afsláttur reiknast af öllu dvalargjaldinu en ekki einungis grunngjaldi (fyrstu dvalarstund).
Frá 1. janúar 2015 er systkinaafsláttur 30% af dvalargjaldi fyrir annað og 75% fyrir þriðja systkini. Systkinaafsláttur reiknast á eldra (eldri) systkin og tekur einnig til yngri systkina sem eru í leikskóla eða í vistun hjá dagforeldrum.
Liltu-jólin og jólaleyfi
Nemendur í 1. – 7. bekk mættu á jólaball þennan morguninn og áttu skemmtilega stund við jólatréð ásamt hljómsveitinni Jólakúlunum. Á ballið mætti jólasveinn sem sagðist vera tvíburabróðir Stúfs nema hann var miklu lengri og kallaði sig Uppstúf! Hann var fjörugur og skemmtilegur og hlátrasköllin ómuðu.
Eftir jólaballið hófst jólafrí. Hér eru myndir frá morgninum. Mánudaginn 5. janúar er skipulagsdagur og nemendur eiga frí. Kennsla hefst svo aftur að loknu jólaleyfi þriðjudaginn 6. janúar.
Bestu óskir um gleðileg jól og farsæld á komandi ári með þökk fyrir samstarfið á árinu.
Jólaböllin í dag
Jólaböllin í dag:
Kl. 9 – Starar, sandlóur, sólkríkjur, tjaldar, flórgoðar, langvíur
Kl. 10 – Stelkar, steindeplar, músarrindlar, vepjur, himbrimar, svölur, kríur
Kl. 11 – sendlingar, glókollar, maríuerlur, tildrur, lómar, súlur, ritur
Mæta í sínu stofu og svo er marserað í salinn og dansað í kringum jólatréð
Jólaþorpið 2014

Nemendur í 8. bekk hafa undanfarna þematíma unnið að jólaþorpi sem nú er risið fyrir framan bókasafn skólans. Það hefur upp á flest það að bjóða sem prýða má slíkt þorp, s.s. skóla, vita, bryggju, báta, lest, kikrju, skíðabrekku, skóg, jólasveina og að sjálfsögðu fólk af öllum stærðum og gerðum. Nemendur hafa verið áhugasamir og duglegir í þessari vinnu. Vinsælt er að bekkir komi í heimsókn og skoði jólaþorpið og dáist að dýrðinni. Jafnvel er von á utanaðkomandi gestum. Skoðið fleiri myndir frá jólaþorpinu 2014.
.
Bekkjarmóti í skák lokið

Alls kepptu 174 krakkar í undanrásum sem er nýtt met í sögu Salaskóla. Á úrslitamótið komust aðeins 4 efstu lið úr hverju aldurshólfi (2.-4. b) (5.-7. b) og (8.-10. b) ásamt sérstökum gestum sem voru kvennalið að æfa sig fyrir Íslandsmót stúlknasveita sem verður í lok janúar 2015. Mótsstjóri var Tómas Rasmus. Honum til aðstoðar Pétur Ari Pétursson 6. b. og Sandra Björk Bjarnadóttir 10. b.
Efstir urðu kjóar, krakkar úr 10b. 19 v af 24
Í liði Kjóa voru:
Hildur Berglind Jóhannsdóttir
Jón Smári Ólafsson
Kári Steinn Hlífarsson
Garðar Elí
Liðið í öðru sæti var 6. b. himbrimar. 18,5 v af 24
Í liði Himbrima voru:
Sindri Snær Kristófersson
Axel Óli Sigurjónsson
Jón Þór Jóhannsson
Í þriðja sæti urðu fálkar úr 8. b. 17.5v af 24
Í liði Fálka voru:
Róbert Örn Vigfússon
Kjartan Gauti Gíslason
Hafþór Helgason
Þorsteinn Björn Guðmundsson
Bestum árangri náðu eftirtaldir einstaklingar.
1 borð Róbert Örn Vigfússon- 7,5 vinningar af 8
2 borð Jón Smári Ólafsson- 8 vinningar af 8
3 borð Hafþór Helgason 8b og Baldur Benediktsson 10b báðir með 7 vinninga af 8 mögulegum.
Nánari úrslit!

