Okkur bráðvantar kennara í forföll á yngsta stigi. Helst í fullt starf en minna kemur til greina. Hafið samband við skólastjóra eða aðstoðarskólastjóra í síma 4413200, netfang hafsteinn@salaskoli.is
Author Archives: Ásgerður Helga Guðmundsdóttir
Foreldraviðtöl
Ágætu foreldrar
Það eru foreldraviðtöl fimmtudaginn 2. febrúar næstkomandi. Opnað hefur verið fyrir skráningu, en hún fer fram á Mentor þar sem þið veljið ykkur tíma.
Leiðbeiningar um bókun viðtala má finna hér
Lestrarátak Ævars vísindamanns
Við minnum á lestrarátak Ævars vísindamanns og hvetjum eindregið til þátttöku
Hér eru upplýsingar um átakið,(tekið af: www.visindamadur.com )
- Það má lesa hvaða bók sem er.
- Á hvaða tungumáli sem er.
- Hljóðbækur og ef einhver les fyrir þig telst með.
- Allir krakkar í 1. – 7. bekk mega taka þátt.
Fyrir hverjar þrjár bækur sem þið lesið prentið þið út lestrarmiða, fyllið út og skilið á næsta skólabókasafn, sem mun svo koma þeim til skila.
Ef einhverjir eru að taka þátt utan skóla (eins og t.d. krakkar sem búa í útlöndum) er hægt að senda lestrarmiðana á: Heimili og skóli, Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík.
Í byrjun mars verður dregið úr öllum innsendum lestrarmiðum og fá fimm krakkar í verðlaun að vera persónur í æsispennandi geimverubók eftir Ævar vísindamann, Gestir utan úr geimnum, sem kemur út í apríl.
Í síðustu tveimur átökum voru lesnar meira en 114 þúsund bækur. Það verður einstaklega spennandi að sjá hvernig okkur gengur í ár.
Áfram lestur!
ÝTTU HÉR TIL AÐ HLAÐA NIÐUR LESTRARMIÐUNUM
Siljan 2017
Við hvetjum unga upprennandi kvikmyndagerðarmenn til þess að taka þátt í Siljunni 2017
Barnabókasetur stendur fyrir myndbandasamkeppni fyrir nemendur í 5.-10. bekk grunnskóla. Keppt er í tveimur flokkum, 5.-7. bekk og 8.-10. bekk.
Markmiðið er að hvetja börn og unglinga til að lesa og tjá sig um bækurnar sem þau lesa. Nemendur geta unnið einir eða í hópi. Fjalla skal um eina barna- eða unglingabók að eigin vali í hverju myndbandi. Bókin þarf að hafa komið út á íslensku á árunum 2014-2016.
Myndböndin skulu vera 2-3 mínútur að lengd. Vista skal myndböndin á netinu (til dæmis youtube.com) og senda slóðina og upplýsingar um höfunda til barnabokasetur@unak.is Skilafrestur rennur út 10. mars. Sjá nánar á barnabokasetur.is
Öll myndböndin verður því hægt að sjá á netinu. Valin myndbönd verða jafnframt tengd við einn fjölsóttasta vef landsins, gegnir.is þar sem þau munu koma að góðum notum þegar börn og unglingar leita sér að lesefni.
Verðlaun:
Fyrstu verðlaun: 25 þúsund krónur.
Önnur verðlaun: 15.000 krónur.
Þriðju verðlaun: 10.000 krónur.
Auk þess fær skólasafnið í skóla sigurvegarans 100 þúsund króna bókaúttekt frá Félagi íslenskra bókaútgefanda.
Siljan hlaut styrk úr Barnamenningarsjóði. Barnabókasetur er samstarfsverkefni Háskólans á Akureyri, Amtsbókasafnsins og Minjasafnsins á Akureyri.
Umsjón með verkefninu er í höndum stjórnar Barnabókasetursins sem skipuð er Brynhildi Þórarinsdóttur, rithöfundi og dósent við Háskólann á Akureyri, Haraldi Þór Egilssyni safnstjóra Minjasafnsins á Akureyri og Hólmkeli Hreinssyni Amtsbókaverði.
Við hvetjum ykkur til að taka þátt.
Góð þátttaka nemenda og foreldra í námsfundum haustsins
Í morgun var námsfundur með foreldrum og nemendur 7. bekkja og var það jafnframt síðasti námsfundurinn á þessu hausti. Kennarar og stjórnendur eru þá búnir að funda með öllum árgöngum skólans. Fundarsókn var feykigóð og húsfyllir á öllum fundum. Að þessu sinni fórum við nýja leið því að nemendur sátu fundina með foreldrum sínum og tók fullan þátt í umræðum sem boðið var upp á. Fundirnir voru bæði upplýsinga og umræðufundir og við erum að vinna skýrslu upp úr fundunum sem vonandi birtist hér innan skamms. Við þökkum foreldrum og nemendum fyrir góða þátttöku og góða fundi.
Skákstarfið í haust
Kraftmikið skákstarf hefur verið í Salaskóla í haust undir stjórn Sigurlaugar Regínu Friðþjófsdóttur. Æfingar hafa verið reglulega og í nóvember fóru fram fjölmörg innanskólamót þar sem nemendur úr öllum árgöngum leiddu saman hesta sína. Hér má sjá nokkrar skemmtilegar myndir frá mótunum.
Skákmót skóla í Kópavogi
Föstudaginn 25. nóvember var skákmót liða úr 3. – 7. bekkjum í grunnskólum Kópavogs. Lið Salaskóla vann í 3. – 4. bekk og hreppti gullið. Keppendur Salaskóla voru Gunnar Erik, Kjartan, Brynjar Emil, Breki og Sigurður Kristófer.
Í 5. – 7. bekk lenti lið Salaskóla í 7. – 10. sæti en lið Álfhólsskóla var í 1. sæti. Keppendur fyrir Salaskóla voru Samúel Týr, Esther Lind, Sveinbjörn, Telma og Jónas Breki.
2. desember kepptu svo lið úr 1. – 2. bekk og 8. – 10. bekk. Keppni í 1. – 2. bekk var afar hörð og jöfn og voru mörg þeirra með jafnmarga vinninga. Lið Salaskóla hafnaði í 8. sæti og í því voru Ólafur Fannar, Berglind Edda, Valtýr Gauti, Ásdís, Sæþór, Friðbjörn og Elvar dagur.
Unglingalið Salaskóla hreppti bronsið með 9 vinninga, Álfhólsskóli silfrið með 10 vinninga og Hörðuvallaskóla gullið með 14 vinninga. Fyrir Salaskóla kepptu Róbert Örn, Sindri Snær, Ágúst Unnar, Hafþór og Elín Edda. Þess má geta að þau gerðu jafntefli við Norðurlandameistarana úr Álfhólsskóla.
Myndir frá mótunum má sjá hér.
Í dag / today
Rok og rigning getur seinkað ferðum nemenda til skóla. Skólar eru opnir, en mikilvægt er að foreldrar gæti þess að yngri börn fari ekki ein í skóla, þetta á sérstaklega við í efri byggðum og þar sem börn þurfa að fara yfir opin svæði á leið sinni í skóla. Ágætt ef foreldrar sem keyra börn sín í skólann verið ekki allir á ferðinni kl. 8. Það veldur örtröð fyrir utan skólann og slysahættu í myrkrinu.
Með yngri börn er hér átt við 12 ára og yngra.
Due to weather conditions, disruptions in school services may be expected today. Schools are open but parents and guardians are asked to escort children younger than 12 years to school. This especially concerns children living in upper areas that need to cross open spaces on their way to school.
Slæmt veður – pay close attention to weather forecasts
Veðurspá sýnir að börn gætu átt erfitt með að ganga í skólann að morgni dags, föstudagsins 11. nóvember, og er því sérstaklega mikilvægt fyrir foreldra / forráðamenn að fylgjast með fréttum.
English
The weather forecast for the Reykjavík area tomorrow suggests that children may have difficulties travelling to school. Primary schools will stay open but their services may be disrupted. Parents are therefore asked to pay close attention to weather forecasts and announcements in the media. http://shs.is/fyrirtaeki-og-st…/…/roeskun-a-skolastarfi.html
Námsfundir með foreldrum og nemendum
Eins og foreldrar hafa eflaust tekið eftir höfum við ekki verið með námskynningar í haust. Þær eru á vissan hátt barn síns tíma enda hefur samskiptatækni fleytt fram og að ýmsu leyti sinnt því hlutverki sem námskynningar gegndu áður. Þetta hefur m.a. komið fram í frekar slakri mætingu foreldra á þessa fundi. Við höfum því í haust verið að skoða hver þörfin er fyrir fundi af þessu tagi og niðurstaða okkar er sú að setja saman í eitt námskynningar og morgunkaffi stjórnenda. Við köllum þetta námsfundi og á hverjum fundi taka bæði foreldrar og nemendur þátt.
Við leggjum áherslu á að hver fundur hafi skýrt markmið og foreldrar hafi tækifæri til að leggja eitthvað til málanna um nám og skólagöngu barnanna. Einnig að nemendur taki virkan þátt í þessari umræðu í samræmi við þroska og aldur. Við vonum að með þessu fáum við góða umræðu um brýn mál, góðar hugmyndir og þéttara og betra samfélag í kringum skólann.
Búið er að tímasetja fundina. Þeir hefjast allir kl. 8:10 og standa í til 9 eða 9.10.Þeir verða sem hér segir:
14. nóvember |
4. bekkur |
15. nóvember |
3. bekkur |
16. nóvember |
2. bekkur |
22. nóvember |
5. bekkur |
23. nóvember |
6. bekkur |
24. nóvember |
9. bekkur |
25. nóvember |
8. bekkur |
30. nóvember |
10. bekkur |
6. desember |
7. bekkur |