Landspítala afhent gjöf

Krakkarnir í 7. og 8. bekk söfnuðu fé til Landspítala Hringsins í desember með því að halda jólamarkað í skólanum þar sem seld voru jólakort, listaverk, kökur og góðgæti. Ágóðinn var afhentur Landspítalanum við hátíðlega athöfn í sal skólans í morgun þar sem forsvarsmenn Landspítalans tóku við gjöfinni og þökkuðu þann hlýhug sem krakkarnir sýndu í verki.  gjf_til_barnaspla_008.jpg

 

Lesa meira

Ekki lengur mannekla í dægradvöl

Í allt haust vantaði okkur starfsfólk í dægradvöl, en með dugnaði starfsfólks þar tókst okkur að halda henni gangandi. Nú um áramótin bættist við starfsfólk og nú er dægradvölin fullmönnuð. Rétt tæplega hundrað börn eru í dægradvölinni og oft mikið fjör á daginn. HK hefur tekið upp samstarf við okkur og við erum einnig […]

Lesa meira

Foreldraviðtöl föstudaginn 25. janúar

Á föstudaginn, 25. janúar, verða foreldraviðtöl í Salaskóla. Kennarar hafa sent foreldrum tíma fyrir viðtölin og nauðsynlegar upplýsingar. Dægradvölin er opin.

Lesa meira

Hressir krakkar í útikennslu

Útikennsla fellur ekki niður þó illa viðri. Það er bara að búa sig vel og vera í góðum og hlýjum fatnaði. Hópur í 3.- 4.bekk var að byrja í útikennslu í dag.  Á milli þess sem gengið var milli heimila til að taka myndir af krökkunum var rassaþotukeppni og nestistími. Regla númer eitt var höfð […]

Lesa meira

Prófadagar hjá nemendum í 8. – 10. bekk

Nú eru prófadagar hjá elstu nemendum skólans. Nemendur koma til prófs kl. 8:30 á morgnana og fara síðan heim að prófi loknu. Prófum lýkur nk. föstudag. Hér koma nokkur góð ráð til krakka sem eru í próflestri.

Lesa meira

Myndasöfn

    Að nota ljósmynd til að skrifa út frá                   Hugsaðu þér ljósmyndina sem miðju í sögu. Reyndu að ímynda þér hvað gerist áður en myndin var tekin og einnig hvað í vændum er. Smelltu á þá mynd sem þú vilt skoða betur. Þú getur afritað ljósmyndina með því að hægrismella á hana og velja […]

Lesa meira

Hækkun á matarverði

Máltíðin í mötuneyti Salaskóla hefur að undanförnu verið á 235 kr. Vegna verðhækkana síðustu mánuði sjáum við okkur tilneydd til að hækka matarverðið í 250 kr. máltíðina. Hækkun þessi gildir frá næstu mánaðamótum. Við viljum einnig biðja foreldra um að virða gjalddaga, því að við eigum erfitt með að standa í skilum ef gjöldin […]

Lesa meira

Áfram samstarf við HK

Fyrir áramót tókum við upp samstarf við íþróttafélagið HK um æfingar fyrir yngri börn á dægradvalartíma krakkanna. Rúta kom í skólann og fór með nemendur í íþróttahúsið Kórinn og skilaði þeim svo aftur hingað. Þetta heldur áfram nú í janúar, óbreytt að mestu. Þó er sú breyting að þetta verður á mánudögum og föstudögum, […]

Lesa meira

Salaskóli á meðaltalinu

Niðurstöður samræmdra könnunarprófa í 4. og 7. bekk bárust í þann mund sem jólafrí brast á. Við höfum reiknað út meðaltalið fyrir skólann og er það nánast það sama og landsmeðaltal. Taflan sýnir útkomuna:    Salaskóli  Landsmeðaltal    4. bekkur íslenska  6,4  6,2    4. bekkur stærðfræði  6,8  6,8    7. bekkur íslenska  6,8 […]

Lesa meira

Mikil veikindi í Salaskóla

Talsverð forföll eru nú meðal starfsfólks Salaskóla og þrátt fyrir góðan vilja tekst okkur ekki að manna þau öll. Við látum yngstu nemendur ganga fyrir og þurfum stundum að grípa til þess ráðs að fella niður kennslu hjá eldri nemendum. Vonandi gengur þetta hratt yfir.

Lesa meira

Náttúrufræði 8.-10. bekk

  Náttúrufræði krækjur   Hér höfum við safnað saman nokkrum krækjum  sem henta vel til náms í Náttúrufræðum. Veldu efnisþátt hér að neðan. Gangi ykkur vel TR. og JP. Forsíða Erfðafræði Líffræði Efnafræði Eðlisfræði Jarðfræði Stjörnufræði Vistfræði

Lesa meira

Danska í 8. – 10. bekk

salaskoli.is    Danska í Salaskóla                                           Afþreying   Málfræðivefur: http://www.fsu.is/vefir/elisav/malfraedivefur/  Tungebrækkere Danski Disneyvefurinn Multidansk er líka skemmtilegur vefur Danski krónprinsinn Kongehuse   Legolandi Tivoli Dýragarðinum í Kaupmannahöfn   Bakken Bonbonland http://www.duda.dk/http://www.duda.dk/ http://www.jubii.dk/http://www.jubii.dk/ Góð dönskusíða http://www.skolatorg.is/kerfi/engjaskoli/bekkir/default.asp?bk=40 Margt skemmtilegt og fróðlegt […]

Lesa meira