Lestrarkeppninnni LESUM MEIRA lokið
Undanfarnar fjórar vikur hafa bekkirnir á miðstigi verið að keppa saman í lestrarkeppninni LESUM MEIRA. Markmið keppninnar er að nemendur verði víðlesnari, auki við orðaforða sinn og að áhugi á bóklestri eflist. Frá skólabyrjun hafa krakkarnir verið að undirbúa sig fyrir keppnina með því að lesa bækur af ákveðnum lista sem gefinn er upp. Á honum eru valdar bækur sem eru við flestra hæfi og auðvelt er að nálgast, 16 íslenskar skáldsögur, 6 þjóðsögur og 3 endursagðar Íslendingasögur.
Lesa meira
Verðlaun fyrir norræna skólahlaupið
Norræna skólahlaupið er hlaupið nánast í öllum skólum á landinu og á hinum norðurlöndunum. Við í Salaskóla höfum haft þetta með örlitlu öðru sniði en aðrir, þar að segja í stað þess að hlaupa ákveðnar vegalengdir sem nemendur geta valið um 3,5 km, 5 km og 10 km. Við notum einn íþróttatíma eða 35 mínútur þar sem nemendur hlaupa eins marga (nettóhringi) sem er 640 metra hringur og þeir geta. Í ár hlupu nemendur Salaskóla 1,745 km sem er bæting um 502 km frá því í fyrra. Sú sem hljóp mest hjá stelpunum í 1.-4. bekk hljóp 9 hringi og það var Sandra Diljá hjá strákunum voru það Anton Fannar, Gísli Gottskálk og Kári Vilberg sem hlupu einnig 9 hringi sem eru 5,76 km.
Lesa meiraVerðlaunahátíð Fjölgreindaleikanna
Í dag voru allir nemendur skólans kallaðir á sal, Klettagjána, en þar fór fram verðlaunahátíð að loknum fjölgreindaleikum 2013. Liðin fengu mismunandi mörg stig á þeim fjölmörgu stöðvum sem voru í gangi á fjölgreindaleikum en þau eru gefin fyrir frammistöðu liðsins, en einnig voru gefin stig fyrir jákvæðni og prúðmennsku. Það gat líka skipt […]
Lesa meiraNemendur í 7.og 8. bekk söfnuðu fyrir Rauða krossinn.
Nemendur í 7. og 8. bekk hafa verið í góðgerðarþema að undanförnu. Fulltrúi frá Rauða krossinum kom í heimsókn og fræddi okkur um starfsemina. Þemað endaði á kaffihúsi þar sem foreldrar og aðstandendur gátu keypt vöfflur, kaffi, djús, heimgerð jólakort og origami túlípana. Það söfnuðust rúmlega 70.000 kr. Helga Halldórsdóttir kemur frá Rauða krossinum á […]
Lesa meiraNíundubekkingar á Laugum
Undanfarin ár hafa 9.bekkingar í skólanum sótt Lauga í Sælingsdal heim sem Ungmennafélag Íslands rekur. Hvert námskeið stendur í viku og er farið á mánudagsmorgni og komið heim á föstudagseftirmiðdegi. Dagskrá daganna samanstendur af skipulögðum viðfangsefnum tengdum lífsleikni, lifandi sögu, íþróttum og útivist og frjálsum tíma síðdegis ásamt kvöldvökum. Aðstaða er öll hin glæsilegasta.Nemendur okkar í kjóum og […]
Lesa meiraVið erum vinir ….
Haldið var upp á baráttudag gegn einelti, sem er í dag 8. nóvember, með því að nemendur og starfsfólk söfnuðust saman í útiþinginu (hringnum) þar sem við hittum leikskólabörn úr nærliggjandi leikskólum. Þar var sungið saman lagið Við eru vinir og fleiri lög í sama dúr. Víða í hópnum mátti sjá plaköt þar sem […]
Lesa meiraVetrarleyfi
Mánudaginn 21. október og þriðjudaginn 22. október er vetrarleyfi í Salaskóla. Engin starfsemi er í skólanum þessa daga.
Lesa meiraFrá stjórnendum Salaskóla
Ágætu foreldrar Okkur undirrituðum er kunnugt um að póstkerfi Salaskóla, mentor, hafi verið notað af foreldrum í síðustu viku til að senda fjöldapóst vegna hugmynda um fyrirhugaða stækkun íþróttahússins. Við vitum ekkert um hvers vegna kerfið okkar var notað og berum enga ábyrgð á þeim bréfum sem send voru. Sérhvert foreldri getur sent fjöldapóst […]
Lesa meiraSkemmtileg kveðja frá Reykjum
Sjöundubekkingar sendu kveðju frá Reykjum sem hægt er að skoða með því að smella á myndina. Ævintýri líkast að dvelja á Reykjum.
Lesa meiraSjöundubekkingar á Reykjum þessa vikuna
Eftirfarandi fréttir bárust frá Reykjum í dag þar sem sjöundubekkingar dvelja um vikutíma: „Reykjafararnir komu í skólabúðirnar á hádegi í gær og gekk ferðalagið vel. Krakkarnir una sér nú við leik og störf í Reykjaskóla og standa sig og skemmta sér frábærlega“. Skólabúðirnar á Reykjum hafa mörg markmið að leiðarljósi í sínu starfi og […]
Lesa meiraForeldraviðtalsdagur á fimmtudag, 10. október
Fimmtudaginn 10. október eiga nemendur að mæta með foreldrum sínum í viðtöl við umsjónarkennara. Upplýsingar um viðtalstíma hafa verið sendar út. Aðrir kennarar verða einnig til viðtals þennan dag. Engin kennsla er í skólanum en dægradvölin er opin frá kl. 8.
Lesa meira