Stóra upplestrarkeppnin

Stóra upplestrarkeppnin! 📚
Í dag fór fram upplestrarhátíð í Salaskóla, en hún er undankeppni 7. bekkinga fyrir lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar í Kópavogi sem haldin verður í lok mars í Salnum.

Nemendahópurinn stóð sig með stakri prýði og ljóst að æfingar í upplestri, framsögn og túlkun hafa svo sannarlega skilað sér.
Þrír nemendur voru valdir sem fulltrúar Salaskóla, þær Ella Sif og Embla Dröfn sem aðalmenn og Snædís sem varamaður. Þær hefja nú undirbúning og æfingar og við vitum að þær verða verðugir fulltrúar okkar á lokahátíðinni.
Dómarar voru Kristín skólastjóri, Stefán kennari á unglingastigi og Guðmundur Karl prestur í Lindakirkju.
Það voru kennararnir Hrafnhildur og Sigurlaug og Hulda deildarstjóri sem höfðu veg og vanda að undirbúningi upplestrarhátíðarinnar.
Til hamingju Ella Sif, Embla Dröfn og Snædís!

Screenshot

Birt í flokknum Fréttir.