Nemendur í 8. og 9. bekk tóku þátt í ljósmyndasamkeppni á degi íslenskrar náttúru og úr varð svo heljarinnar ljósmyndasýning á göngum skólans. Nemendur fengu lista af þemum sem þau máttu velja og tóku myndir sem tengdust þeim.
Þrír voru valdir úr hverjum hóp og fengu þau myndina sína útprentaða í stórum ramma. Auk þess voru nokkrar aðrar myndir valdar sem þóttu fallegar og voru þær settar í minni ramma.
Við í Salaskóla stefnum á að halda fleiri ljósmyndasýningar enda voru nemendur mjög stoltir að sjá myndirnar sínar upp á vegg í ramma. Þetta vakti einnig mikinn áhuga og athylgi frá öðrum nemendum og kennurum skólans.
Hér má sjá mynd frá sýningunni:
Hér má sjá þær myndir sem voru valdar:
Hið dýrmæta líf – Besta myndin, 9.bekkur
Haust – Besta myndbyggingin, 9.bekkur
Haust – Sú mynd sem lýsti þemanu ,, Haust “ best 9.bekkur
Fram í heiðanna ró – Besta myndin, 8. bekkur
Jörðin og vatnið – Sú mynd sem lýsti því þema best, 8.bekkur
Gult og grænt – Besta myndbyggingin, 8. bekkur