Í blíðviðrinu undanfarna daga hafa margir kennarar farið út með bekkina sína og nám farið fram utan dyra. Starfsfólk og krakkar í dægradvölinni gerðu sér einnig lítið fyrir í dag og fóru í hjólatúr saman í nágrenni skólans. Þau höfðu nesti með í för og ætluðu að gæða sér á því í Ársölum.
Gaman var að sjá hjólastrolluna leggja af stað frá skólanum, allir með hjólreiðahjálmana á sínum stað og eftirvæntingin skein úr andlitunum.