Það er orðin hefð í Salaskóla að halda upp á Lúsíumessu sem tengist verndardýrðlingnum Santa Lúsíu. Kór Salaskóla, sem er skipaður nemendum úr 3.-7. bekk, sér ávallt um Lúsíuathöfnina undir stjórn Ragnheiðar tónmenntakennara. Krakkarnir klæðast þá hvítum kyrtlum, hnýta silfurbönd um mitti sér og höfuð og með ljós í hönd. Lúsían sjálf er prýdd ljósakransi og með rauðan linda um mitti. Í morgun fór Lúsíugangan um allan skólann með tilheyrandi söng og hátíðleika. Katrín Kristinsdóttir í fálkum var Lúsían þetta árið. Nemendur komu fram á ganga með kennurum sínum og fylgdust með göngunni. Falleg og friðsæl stund í morgunsárið.
Author Archives: Logi
Rithöfundur sótti okkur heim
Nú í morgunsárið kom rithöfundurinn Gerður Kristný í heimsókn í skólann og hitti alla nemendur í 1. – 5. bekk. Gerður sagði frá barnæsku sinni, kynnti eldri bækur sínar eins og Mörtu Smörtu, Garðinn og Ballið á Bessastöðum og las síðan úr nýjustu bókinni Prinsessunni á Bessastöðum. Krakkarnir kunnu vel að meta frásögn Gerðar, hlustuðu af athygli og skemmtu sér hið besta. Það er afar kærkomið að fá góðar heimsóknir sem þessar, þær eru tilbreyting frá hversdagsleikanum og brjóta upp skammdegið.
Skólanum færð gjöf
Úlfar Andri Sölvason nemandi í þröstum kom færandi hendi í skólann í morgun. Hann gaf skólanum glænýtt spil, Vikings, sem er algjörlega íslensk hönnun. Hann sagði að pabbi sinn hefði hannað spilið og það væri mjög skemmtilegt. Hann afhenti skólastjóra spilið að viðstöddum bekkjarfélögum sínum og saman fór allur hópurinn inn bókasafn þar sem spilið verður til útláns. Við þökkum kærlega fyrir þessa góðu gjöf.
Legómeistarar heiðraðir
Legómeistararnir, Róbóbóbó, voru heiðraðir með miklu lófataki í sal skólans í gær þar sem söfnuðust saman nemendur skólans og starfsfólk. Lególiðið endurtók skemmtiatriði sem þeir fluttu í keppninni og sungu og léku svokallaðan Legóbílablús við mikinn fögnuð áheyrenda. Í dag kom svo iðnaðarráðherra, Katrín Júlíusdóttir, hitti legómeistarana og fékk kynningu á verkefninu þeirra.
Sigur hjá Róbóbóbó
Lególíð Salaskóla, Róbóbóbó, náði frábærum árangri í Legókeppninn First Lego League sem haldin var í dag, 7. nóvember, í Keili í Reykjanebæ. Liðið sýndi mikla samhæfni og sérlega góða færni í öllum hlutum keppninnar og endaði sem sigurvegari og FLL- meistari 2009 á Íslandi.
Einnig fengu þeir sérstök verðlaun fyrir góðar dagbókarfærslur og besta hönnun á vélmenni. Sigurinn gefur þeim rétt til þátttöku í Evrópukeppni FLL sem haldin verður í Tyrklandi í apríl 2010. Liðsmönnum Róbóbóbó og liðsstjórum eru færðar hamingjuóskir. en þau uppskera nú í samræmi við mikla og óeigingjarna vinnu síðustu vikna. Meira á www.firstlego.is og á heimasíðu Róbóbóbó.
Leiksýningin Rúi og Stúi
Kópavogsdeild Rauða krossins og Leikfélag Kópavogs hafa tekið upp samstarf í tengslum við barnasýninguna Rúa og Stúa sem Leikfélagið sýnir og er ætluð nemendum í 1.- 5. bekk. Þriðjungur af andvirði hvers miða á sýninguna fer til styrktar barna- og ungmennastarfi Kópavogsdeildar Rauða krossins.
Leikhúsgestir geta þannig slegið tvær flugur í einu höggi, stutt börn og ungmenni í gegnum hjálparstarf Rauða krossins og notið bráðskemmtilegrar leiksýningar. Markmið samstarfsins er meðal annars að efla samstarf félagasamtaka i Kópavogi.
Um leiksýninguna:
Rúi og Stúi eru sérkennilegir uppfinningamenn sem hafa fundið upp vél sem getur búið til eða lagað hvað sem er. Bæjarbúar eru afar ánægðir með vélina eins og gefur að skilja en blikur eru á lofti þegar vélin bilar og bæjarstjórinn hverfur. Samtímis fer skuggalegur karakter á kreik í bænum og undarlegustu hlutir fara að hverfa úr fórum bæjarbúa.
Sex leikarar taka þátt í sýningunni sem er í leikstjórn Harðar Sigurðarsonar. Aðstoðarleikstjóri og allsherjarreddari er Sigrún Tryggvadóttir, Bergrún Íris Sævarsdóttir sér um leikmynd og lýsingu annast Arnar Ingvarsson og Skúli Rúnar Hilmarsson. Fjölmargir aðrir hafa einnig lagt hönd á plóg til að gera sýninguna sem best úr garði.