Á vefinn eru komnar niðurstöður úr könnunum sem lagðar voru fyrir foreldra um viðhorf þeirra til skólastarfs í Salaskóla.
Smellið hér til að skoða nánar.
Category Archives: Fréttir
Val í 9. og 10. bekk skólaárið 2008-2009
Nemendur í 8. og 9. bekk eiga velja valgreinar fyrir næsta skólaár. Mikilvægt að allir velji og geri það í síðasta lagi föstudaginn 30. maí.
Margir komu á opið hús
Myndasýningar:
Hraðskák bæjarstjóra og skákmeistara
Á sal: samsöngur 1.-2. bekkinga og skólakórinn
Grænfáninn dreginn að húni
Gaman var að sjá hversu margir lögðu leið sína í skólann í dag til að skoða afrakstur vetrarins. Þar voru mættir foreldrar, systkini, ömmur, afar og nemendur úr nágrannaskólum. Ýmsar uppákomur voru á sal t.d. sungu yngstu nemendur af mikilli innlifun í samsöng, skólakórinn undir stjórn Ragnheiðar Haraldsdóttur bauð upp á vandaða og skemmtilega söngdagskrá og loks sýndu 7. bekkingar frumsamið leikrit sem góður rómur var gerður að.
Á nýja bókasafninu á efri hæð var skákíþróttin iðkuð af kappi því einn af skákmeisturum skólans Guðmundur Kristinn Lee og bæjarstjórinn Gunnar Birgisson öttu kappi í hraðskák. Grænfáninn var síðan afhentur í þriðja sinn vegna góðrar frammistöðu skólans í umhverfismálum og var glænýr fáni dreginn að húni að því tilefni. Gestir gátu síðan gætt sér á kaffi og vöfflum gegn vægu gjaldi á meðan á heimsókninni stóð.
Opið hús í Salaskóla í dag
Kríur
Hér eru myndasögusýningar nemenda í kríum vorið 2009
Nemendur í 4. bekk sóttu námskeið í myndasögugerð í apríl og maí. Myndasögugerðin var einstaklingsverkefni og gekk út á að "ferðast" á Google Earth sem er á netinu og taka myndir á meðan á ferðalaginu stóð. Nemandinn lærði á ýmsa möguleika í Google Earth, að afrita myndir inni í hugbúnaðinum og loks að koma þeim fyrir í eigin möppu á netþjóni skólans. Þá raðaði hann myndunum úr "ferðalaginu" inn í forrit sem heitir Photostory. Í því forriti bjó hann til texta sem lýsti myndinni (frá sögulegu eða listrænu sjónarhorni). Síðan var sett inn tónlist sýningarinnar sem valin var af kostgæfni í hverju tilfelli fyrir sig. Að síðustu var birtingarform myndanna ákveðið t.d. koma þær fljúgandi inn frá einu horni eða birtast eins og stjarna o.s.frv. Sýningar krakkanna opnast í Media player.
Gjörið svo vel að skoða afraksturinn hér.
Góða skemmtun.
Teistur
Hér eru myndasögusýningar nemenda í teistum.
Nemendur í 3. – 4. bekk sóttu námskeið í myndasögugerð í apríl og maí. Myndasögugerðin var einstaklingsverkefni og gekk út á að velja sér ákveðið viðfangsefni t.d. um gæludýr, áhugamál eða íþróttagrein. Nemandinn safnaði myndum tengt viðfangsefninu sem hann valdi sér. Hann lærði að vista þær í eigin möppu í tölvunni og vinna í einfaldri myndvinnslu eftir þörfum. Þá raðaði hann myndunum í ákveðna röð inn í forrit sem heitir Photostory. Í því forriti bjó hann til texta við myndirnar, sumir talsettu og síðan var valin tónlist sýningarinnar sem valin var af kostgæfni í hverju tilfelli fyrir sig. Að síðustu var birtingarform myndanna ákveðið t.d. koma þær fljúgandi inn frá einu horni eða birtast eins og stjarna. Sýningar krakkanna opnast í Media player.
Gjörið svo vel að skoða afraksturinn hér.
Góða skemmtun.
Mávar
Hér eru myndasögusýningar nemenda í mávum vorið 2009
Nemendur í 4. bekk sóttu námskeið í myndasögugerð í apríl og maí. Myndasögugerðin var einstaklingsverkefni og gekk út á að "ferðast" á Google Earth sem er á netinu og taka myndir á meðan á ferðalaginu stóð. Nemandinn lærði á ýmsa möguleika í Google Earth, að afrita myndir inni í hugbúnaðinum og loks að koma þeim fyrir í eigin möppu á netþjóni skólans. Þá raðaði hann myndunum úr "ferðalaginu" inn í forrit sem heitir Photostory. Í því forriti bjó hann til texta sem lýsti myndinni (frá sögulegu eða listrænu sjónarhorni). Síðan var sett inn tónlist sýningarinnar sem valin var af kostgæfni í hverju tilfelli fyrir sig. Að síðustu var birtingarform myndanna ákveðið t.d. koma þær fljúgandi inn frá einu horni eða birtast eins og stjarna o.s.frv. Sýningar krakkanna opnast í Media player.
Gjörið svo vel að skoða afraksturinn hér.
Góða skemmtun.
Ritur
Hér eru myndasögusýningar nemenda í ritum vorið 2009

Foreldrum boðið í Salaskóla 27. maí
Þriðjudaginn 27. maí bjóðum við foreldrum nemenda í 1. – 7. bekk í skólann frá kl. 8:10 – 10:00. Ýmislegt verður um að vera í kennslustofum, á göngum, í salnum og á skólalóðinni. Munir sem nemendur hafa búið til verða til sýnis, skólakórinn syngur, krakkar spila á hljóðfæri, lesa upp ljóð, sýna leikrit, syngja og svo framvegis. Hægt er að kaupa sér kaffi og vöfflu til að gæða sér á. Þá er hægt að fylgjast með kennslu í bekkjum og í smiðjum í verklegum greinum. Nánar um dagskrá ef þú smellir á "Lesa meira"
Dagskráin er að mótast en nú þegar liggur fyrir að 1. – 2. bekkur verður með samsöng á sal kl. 8:45.
Kl. 9:00 teflir bæjarstjórinn hraðskák við einn af skákmeisturum Salaskóla.
Kl. 9:10 syngur skólakórinn í salnum
Kl. 9:30 verður Salaskóla afhentur Grænfáninn í þriðja skiptið.
Kl. 10:00 eru nemendur í 7. bekk með sýningu á leikriti sínu fyrir jafnaldra sína í Hörðuvallaskóla og Vatnsendaskóla. Aðrir mega að sjálfsögðu horfa líka.
Hvetjum foreldra barna í 1.-7. bekk til að líta inn og sjá fjölbreytt og skemmtilegt starf.