Alþjóðlegur dagur downs heilkennis er laugardaginn 21. mars nk.
Við í Salaskóla munum halda upp á daginn núna á föstudaginn, þ.e. 20. mars.
Markmið dagsins er að vekja athygli á fjölbreytileika samfélagsins okkar. Í tilefni dagsins hvetjum við alla nemendur og starfsfólk til að mæta í mislitum sokkum.
Við hlökkum til að sjá skólann fyllast af litríkum sokkum og gleði þegar við fögnum fjölbreytileikanum saman.
