Guðmundur Kristinn Lee, Salaskóla, og Vignir Vatnar Stefánsson, Hörðuvallaskóla, urðu kjördæmismeistarar Reykjaness í skólaskák fimmtudaginn 28.04.2011. Guðmundur í eldri flokki en Vignir í þeim yngri. Birkir Karl Sigurðsson, Salaskóla, tryggði sér einnig keppnisrétt á Landsmótinu en hann endaði í 2. sæti í eldri flokki. Hilmir Freyr Heimisson hafnaði í öðru sæti í yngri flokki.
Sigur Guðmundar var einkar glæsilegur og sigraði hann alla sína andstæðinga. En allir fulltrúar Salaskóla náðu verðlaunasæti sem sýnir hversu öflugir okkar krakkar eru í skáklistinni.
Lokastaðan í eldri flokki:
1. Guðmundur Kristinn Lee, Salaskóla, 4 v.
2. Birkir Karl Sigurðsson, Salaskóla, 3 v.
3. Hans Adolf Linnet, Setbergsskóla, 2 v.
4. Jón Hákon Richter, Öldutúnsskóla, 1 v.
5. Kristjana Ósk Kristinsd., Garðask. 0 v.
Lokastaðan í yngri flokki:
Aukakeppni þurfti í yngri flokki um 2.-4. sæti. Þar varð Hilmir Freyr efstur, Sóley Lind önnur og Magni þriðji.
1. Vignir Vatnar Stefáns. Hörðuvallask. 5 v.
2. Hilmir Freyr Heimisson Salaskóla, 3 v. (+2½ v.)
3. Sóley Lind Pálsdóttir, Hvaleyrarskóla 3 v. (+ 2 v.)
4. Magni Marelsson, Hvaleyrarskóla, 3 v. (+1½ v.)
5. Kári Georgsson, Hofstaðaskóla,1 v.
6. Aron Laxdal, Lágafellsskóla, 0 v.
Sjá nánar úrslit einstakra skák á vefsíðunni: http://chess-results.com/tnr48847.aspx
Á kjördæmismót komast efstu tveir úr hverju sýslufélagi í okkar kjördæmi, þannig að hér eru þeir bestu af þeim bestu að keppa og allir keppendur státa af meistaratitlum hver á sínu svæði. Landsmótið í skólaskák verður að þessu sinni helgina 13 til 15 maí á Akureyri.
Þess má til gamans geta að í Salaskóla eru nú 7 krakkar sem komnir eru með íslensk skákstig en þeir kepptu um páskana á skákþingi Íslands.
Krakkarnir okkar sem eru komnir með íslensk skákstig eru:
Guðmundur Kristinn Lee 1758
Birkir Karl Sigurðsson 1705
Hilmir Freyr Heimisson 1313
Þormar Leví Magnússon 1226
Jón Smári Ólafsson 1175
Hidur Berglind Jóhannsd. 1128
Jón Otto Sigurjónsson 1000
Af þessum listi sést að framtíðin er björt í skákinni í Salaskóla.