Ágætu foreldrar tilvonandi 1. bekkinga!
Ykkur er boðið að koma með barnið ykkar í vorskóla fimmtudaginn 8. maí og föstudaginn 9. maí. Skólastundin hefst kl. 14:00 báða dagana og er til kl. 15:30. Börnin þurfa ekkert að hafa með sér. Fyrri daginn verður fræðslufundur fyrir foreldra. Við leggjum áherslu á að báðir foreldrar mæti. Þeir sem komast af einhverjum ástæðum ekki þessa daga verða að láta okkur vita. Ef barn hefur ekki verið innritað þarf að hafa samband við skólann strax.
Skólasetning verður föstudaginn 22. ágúst fyrir hádegi. Nánari tímasetningu verður að finna á heimasíðu skólans og í dagblöðum þegar nær dregur.
Skólastjórnendur


Vel gekk í skákinni hjá ferðalöngum á Bolungarvík. Patrekur Maron Magnússon vann alla sína andstæðinga í 11 skákum og stóð uppi sem sigurvegari í mótinu og er Íslandsmeistari í skólaskák. Jóhanna Björg hafnaði í 5. sæti í sama flokki en í yngri fllokknum tók Guðmundur Kristinn fjórða sætið og Birkir Karl það áttunda. Þetta eru allt gífurlega öflugir skákmenn sem hafa lagt mjög hart að sér. Við óskum þeim til hamingju með glæsilegan árangur. 
Fjórir nemendur úr Salaskóla unnu sér inn rétt til að tefla á landsmóti í skólaskák sem fram fer dagana 24.- 27. apríl á Bolungarvík. Það eru þeir Birkir Karl Sigurðsson og Guðmundur Kristinn Lee í yngri flokki en í þeim eldri eru þau Jóhanna Björg Jóhannsdóttir og Patrekur Maron Magnússon. Það fréttist rétt í þessu að Patrekur er efstur í sínum flokki eftir 4 umferðir. Hægt er að fylgjast með stöðunni og gengi okkar fólks á 


Þegar litið var yfir skólann í dag var eins græn slikja lægi yfir honum enda svokallaður grænn dagur. Nemendur og starfsfólk minntu á það með grænum lit í fötum sínum eða skarti. Dagurinn gekk mjög vel, allir bekkir fóru út á skólalóðina og týndu rusl í poka. Ætti skólalóð og næsta umhverfi að vera mun snyrtilegra núna. Gaman er að geta þess að samvinnuskólar okkar í Comeniusarverkefninu voru að vinna að sama verkefni í sínum heimalöndum. Við fengum góðar kveðjur frá vinum okkar í Finnlandi.
Tilgangurinn er að vekja athygli á hversu mikilvægt er að hlúa að umhverfi sínu. Þegar allir leggjast á eitt næst árangur. Nemendur stóðu sig mjög vel og í verðlaun fyrir þátttöku fengu þau frostpinna í hádeginu sem að sjálfsögðu var grænn á litinn.

Á morgun, fimmtudaginn 17.apríl, er svokallaður Græni dagurinn hér í Salaskóla. Þá ætlum við að huga að nánasta umhverfi okkar og skoða hvað við getum gert til að fegra umhverfi skólans og næsta nágrenni. Það er mælst til þess að bæði nemendur og starfsfólk mæti í einhverju grænu í skólann þennan dag. Það geta verið föt, húfur, sólgleraugu og annað í þeim dúr. Breiðabliksföt gætu t.d. nýst vel í þetta. 
Matseðill fyrir aprílmánuð er kominn á vefinn. Skoðið hann