Nemendur í 8. – 10. bekk eiga að velja í dag, fimmtudaginn 16. febrúar. Smellið hér til að velja.
Category Archives: Fréttir
Fiskifræðingar framtíðarinnar?
Krakkarnir í 8. bekk stóðu sig vel í náttúrufræðinni nú á dögunum þegar þau tóku sér krufningshníf í hönd og rannsökuðu fiskitegundina ýsu gaumgæfilega – að innan sem utan. Á myndum sem teknar voru má sjá að þau voru hvergi bangin í krufningunum. Í ljós kom meira að segja að ein ýsan var með eitthvað í kjaftinum sem reyndist vera kolkrabbi (sjá mynd). Kannski leynist í þessum hópi fiskifræðingar framtíðarinnar, hver veit.
Haldið upp á 100 daga í skólanum
Í gær héldu fyrstubekkingar upp á að þeir eru nú búnir að vera 100 daga í skólanum en það er orðin hefð í skólanum að gera sér dagamun þá. Ýmislegt skemmtilegt var gert í tilefni dagsins og viðfangsefnin tengd við töluna hundrað. Á einni stöðinni voru t.d. 10 skálar með góðgæti og þar áttu krakkarnir að tína 10 bita úr hverri skál niður í poka, samtals 100 stykki. Einnig voru föndraðar kórónur með tölunni 100 og hringir klipptir út úr pappír og settir saman í tugi og hundrað og hengdir í loftið. Mikið fjör og krakkarnir skemmtu sér afar vel. Hér eru myndir frá hátíðinni.
Nú er lokið meistaramóti Salaskóla 2012.
Alls tóku 134 nemandi þátt í meistaramóti Salaskóla og var því skipt í þrjá riðla í undanrásum.
1.-4. bekkur sigurvegari: Axel Óli Sigurjónsson 3b ( 47 keppendur )
5.-7 bekkur sigurvegari: Hilmir Freyr Heimisson 5b (68 keppendur )
8.-10 bekkur sigurvegari: Birkir Karl Sigurðsson 10b ( 19 keppendur )
Föstudaginn 3. feb. var síðan haldið úrslitamót þar sem keppt var um hver væri skákmeistari Salaskóla og sigraði Birkir Karl Sigurðsson og er hann því meistari meistaranna 2012.
Móttsjórar voru Tómas Rasmus og Sigurlaug Regína.
Myndir frá lokamótinu.
Úrslit úr einstökum árgöngum:
1. bekkur
1. Samúel Týr Sigþórsson Lóum
2. María Jónsdóttir Hrossagaukar
3. Logi Traustason Hrossagaukar
2. bekkur
1. Gísli Gottskálk Þórðar. Músarrindlar
2. Kári Vilberg Atlason Sendlingum
3. Hlynur Smári Magnússon Músarrindlum
3. bekkur
1.Axel Óli Sigurjónsson Starar
2. Jón Þór Jóhannasson Starar
3. Daníel Snær Eyþórssyn Starar
4. bekkur
1. Björn Breki Steingr. Steindeplum
2. Vilhelm Þráinn Steindeplum
3. Ernir Jónsson Steindeplum
5. bekkur
1. Hilmir Freyr Heimisson 5. b. Kríur
2. Kjartan Gauti Gíslason 5. b. Mávar
3. Róbert Örn Vigfússon 5. b. Mávar
6 bekkur
1. Jón Otti Sigurjónsson 6. b. Teistur
2. Jón Arnar Sigurðsson 6. b. Teistur
3. Bjartur Rúnarsson 6. b. Lundar
7. bekkur
1. Hildur Berglind Jóhanns. 7. b. Súlur
2. Jón Smári Ólafsson 7. b. Súlur
3. Garðar Elí Jónasson 7. b. Súlur
8. bekkur
1. Skúli E Kristjánsson Sigurz 8. b. Fálkar
2 .Magnús Már Pálsson 8. b. Fálkar
3. Pharita Khamsom 8. b. Ernir
9. bekkur
1. Baldur Búi Heimisson 9. b. Himbrimar
2. Eyþór Trausti Jóhannsson 9. b. Himbrimar
3. Aron Ingi Jónsson 9. b. Himbrimar
10. bekkur
1. Birkir Karl Sigurðsson 10. b. Krummar
2. Björn Ólafur Björnsson 10. b. Krummar
3. Jón Pétur 10. b. Krummar
Salaskóli tók bronsið
Salaskóli tók bronsið í sveitakeppni stúlkna sl. laugardag. Stelpurnar úr Salaskóla á sigurbraut í skákinni.
Þær Hildur Berglind Jóhannsdóttir 7. b., Guðbjörg Lilja Svavarsdóttir 8. b., Rebekka Ósk Svavarsdóttir 7.b., Rakel Eyþórsdóttir 8. b. og Mai Pharita Khamsom 8. b. kepptu fyrir hönd Salaskóla á mjög sterku stúlknamóti sl. laugardag. Þær sigruðu 5 skóla af 7 sem þær kepptu við og hrepptu bronsið af öryggi. Ath. Þær voru að keppa við margar þrautþjálfaðar skákstúlkur.
Nánari úrslit á vefsíðunni: http://skak.blog.is/blog/skak/entry/1221277/
Morgunkaffi í 1. – 7. bekk
Nú höfum við boðið foreldrum allra nemenda í 1. – 7. bekk í morgunkaffi. Samtals mættu tæplega fimmhundruð foreldrar og sötruðu með okkur kaffisopa í morgunsárið. Foreldrar 76% barna í þessum bekkjum mættu að meðaltali og var mæting mun betri í yngri bekkjunum en þeim eldri. Foreldrar stara og stelka mættu hlutfallslega best, en þar voru 95% foreldra mætt. Fjölmennustu fundirnir voru í sendlingum og stelkum, 26 foreldrar voru á hvorum fundi. Á þessum fundum bar ýmislegt á góma og umræður voru góðar og ganglegar fyrir okkur. Það er mikilvægt fyrir okkur skólastjórnendur að eiga þessi samskipti við foreldra.
Foreldrar settu niður á blað það sem þeim finnst gott í starfi skólans og það sem má bæta. Almenn ánægja var með kennara og kennslu. Einnig voru margir sem nefndu góða sérkennslu. Upplýsingaflæði frá skóla til foreldra þykir gott sem og samstarf skólans við foreldra. Þá nefndu margir viðmót starfsfólks skólans, gott andrúmsloft og hversu vel og hratt er tekið á málum. Reyndar voru einnig einhverjir sem töldu mál vinnast of hægt. Dægradvölin fékk mjög góða einkunn hjá foreldrum og margir hrósuðu starfinu þar. Fleira sem var nefnt og ánægja er með er samvinna við tónlistarskóla, skákstarfið, kórinn, samsöngurinn, fjölgreindaleikarnir, maturinn og umhverfi skólans. Þá virtust foreldrar nemenda í 5. bekk almennt ánægðir hvernig tiltókst með uppstokkun á þeim bekkjum.
Það sem oftast bar á góma að mætti bæta var fataklefinn en þar eru snagar og hillur of hátt uppi. Það er nú verið að laga og á næstu dögum verða snagar og hillur komin í rétta hæð fyrir litla krakka. Nokkrir nefndu að skólalóðin væri tómleg og mætti bæta. Sumir nefndu tíð kennaraskipti sem ókost og það að hafa sundið eftir að skóla lýkur. Einnig kom fram að bæta mætti gæsluna í útivistinni eða skerpa á henni. Hjá einhverjum kom fram óánægja með matinn, en eins og kemur fram að ofan kom líka mikil ánægja fram með hann. Þá var talsvert nefnt að betra skipulag mætti vera á óskilafatnaði.
Fjölmargar góðar ábendingar komu fram sem við tökum til skoðunar og einnig notuðu margir tækifærið til að hrósa ákveðnum starfsmönnum. Hrósinu munum við koma til skila.
Við þökkum ykkur foreldrum fyrir góða mætingu í morgunkaffið og ykkar innlegg í að bæta skólann okkar.
Úrslit miðstigs og meistaramót á næstunni
Nú liggja úrslitin úr meistarakeppni Salaskóla í skák á miðstigi fyrir. Alls kepptu 63 nemendur á miðstigi að þessu sinni. Sigurvegari miðstigs var Hilmir Freyr Heimisson í öðru sæti var Hildur Berglind Jóhannsdóttir. Heildarúrslit er hægt að sjá hér ásamt myndum. Nú er lokið undanrásum úr þremur aldurshólfum í meistaramóti Salaskóla í skák.
Alls kepptu:
21 í unglingadeild
63 á miðstigi
47 á yngsta stigi
Alls 131 nemandi.
Á úrslitamótinu þar sem leitað verður að meistara meistaranna föstudaginn 3. feb. 2012 keppa síðan þrír efstu úr hverjum árgangi og að auki 12 sérvaldir snillingar eða 42 krakkar. Þessir keppa föstudaginn 3.2.2012
Skákdagurinn
Skákdagurinn er haldinn um allt land í dag, fimmtudaginn 26. janúar – í tilefni af afmælisdegi fyrsta stórmeistara Íslendinga Friðriks Ólafssonar. Taflfélög, skákklúbbar, grunnskólar, fyrirtæki, sundlaugar og fleiri sameinast um að það verði teflt sem víðast á Íslandi og sem flestir landsmenn á öllum aldri setjist að tafli. Í Salaskóla hafa nokkrar skákir verið tefldar í tilefni dagsins og í gangi er skákþraut sem allir geta tekið þátt í. Dregið verður í þrautasamkeppninni föstudaginn 3. febrúar. Um skákdaginn má lesa á www.skakdagurinn.blog.is
Líney Ragna fékk viðurkenningu fyrir ljóðið Köld náttúra
Sl. laugardag voru veitta viðurkenningar fyrir ljóð í ljóðasamkeppnin grunnskólanemenda í Kópavogi. Tíu ljóð eftir nemendur úr Salaskóla voru send í keppnina og hlaut Líney Ragna Ólafsdóttir í 10. bekk viðurkenningu fyrir ljóðið sitt Köld náttúra. Til hamingju Líney!
Þau heimsins fegurstu kristal korn
sem kastast af himni háum.
Þau ísköld eru og ævaforn
á Íslandi of við sjáum.
Þau safnast saman upp í fjöll
á Snæfells jöklatinda.
Allt landslag hverfur undir mjöll
og gerir alla blinda.
Á nóttum norðurljósanna
í nærsýni þær glitra.
Fegurð fer til frostrósanna
er þær fara að titra.