Erum að leita upplýsinga um hvort opið er í Bláfjöllum í dag. Vitum það kl. 8 og látum vita hér og á facebook.
Author Archive: Ásgerður Helga Guðmundsdóttir
Páskabíngó foreldrafélagsins
Hið geysivinsæla páskabingó foreldrafélagsins verður n.k. þriðjudag, 24. mars, og sem fyrr munum við tvískipta því svona:
1. – 5. bekkur verður frá 17:00 – 19:00
6. – 10. bekkur verður frá 20.00 – 22.00
5. bekkur getur þó valið hvort þau vilja mæta með yngri eða eldri hópnum.
Muna að taka reiðufé með ykkur þar sem engir posar eru á svæðinu. Spjaldið kostar 500 kr og síðan verður 10. bekkur með veitingasölu í fjáröflun. Í boði verður samlokur, kökur, drykkir og fleira, þau eru heldur ekki með posa,
Ef einhver hefur tök á að útvega vinninga í bingóið þá má hinn sami hafa samband við einhvern úr stjórn foreldrafélagsins :), sjá hér http://salaskoli.is/index.php?option=com_content&view=article&id=300&Itemid=194
Sjáið einnig nánar um viðburðinn á facebook – síðu foreldrafélagsins https://www.facebook.com/events/580189758751379/
Niðurstöður foreldrakönnunar Skólapúlsins komnar
Niðurstöður foreldrakönnunar Skólapúlsins voru að berast. Þær eru komnar á heimasíðuna undir skólinn – mat á skólastarfi. Og svo eru hún bara hér: Foreldrakönnun Skólapúlsins 2014-2015, Salaskóli
Skipulagsdagur föstudaginn 13. mars
Næstkomandi föstudag, 13. mars, verður skipulagsdagur í Salaskóla. Daginn nota kennarar í að meta starfið undanfarna mánuði og leggja línurnar fyrir síðasta áfanga skólaársins. Þá verður einnig gengið frá umbótaáætlun vegna úttektar sem Menntamálaráðuneytið gerði á Salaskóla rétt fyrir jól. Það eru sem sagt ærin verkefni sem liggja fyrir sem ekki gefst tími til að vinna dagsdaglega. Dægradvölin er opin þennan dag.
Máltíðir í Salaskóla
Á skólaþingi nemenda 12. febrúar sl. var rætt um matartímana. Fram komu ýmsar góðar hugmyndir sem við höfum nú tekið saman og unnið úr þeim annars vegar viðmið fyrir matartímana og reglur um matartímana hins vegar. Nemendur eiga í raun allan heiður af þessu. Þetta er hægt að sjá hér:
Innritun í Salaskóla fyrir næsta skólaár
Innritun 6 ára barna (fædd 2009) fer fram í Salaskóla mánudaginn 2. og þriðjudaginn 3. mars. Sömu daga fer fram innritun nemenda sem flytjast milli skólahverfa og þeirra sem flytja í Kópavog eða koma úr einkaskólum. Haustið 2015 munu skólinn hefjast með skólasetningardegi mánudaginn 24. ágúst.
Innritunin fer fram á skrifstofu skólans frá kl. 9:00 – 15:00 báða dagana. Það er bæði hægt að koma á skrifstofuna til að innrita eða gera það í gegnum síma, 570 4600.
Vorskóli fyrir 6 ára börnin verður dagana 7. og 8. maí nk. Fyrri daginn verður jafnframt námskeið fyrir foreldra. Við auglýsum það nána síðar.