Brunabjalla skólans glumdi um kl. 9. í morgun og allt benti til þess að væri eldur. En allir vissu að um brunaæfingu var að ræða sem nauðsynlegt er að hafa öðru hverju. Þegar slíkt er æft er farið eftir ákveðnu skipulagi og allir safnast saman úti á sparkvelli með tilheyrandi nafnakalli. Æfingin gekk óvanalega vel og tók afar stuttan tíma að rýma skólann. Nú verður farið yfir hvernig æfingin gekk og skoðað hvort eitthvað má betur fara. Aftur er stefnt að brunaæfingu næsta haust.
Category Archives: Fréttir
Kosningaverkefni í 10. bekk – X Fantasí bar sigur úr býtum
Eitt verkefni í samfélagsfræði í 10. bekk gengur út á að nemendur skipta sér í hópa og mynda stjórnmálaflokka. Þeir eiga að bjóiða fram og áherslan er á hvernig er hægt að gera skólann að betri stað. Þeir búa til stefnuskrá, kosningamál og auglýsa sína stefnu með ýmsum hætti í skólanum. Svo er framboðsfundur þar sem mættir eru allir nemendur í 7. – 10. bekk og hlusta á málflutning þeirra. Síðan fara fram kosningar. Að þessu sinni vann framboðið X – Fantasí. Fulltrúum þeirra verður boðið á næsta skólaráðsfund þar sem þeir greina frá málefnaskrá sinni. Myndir frá kosningafundinum má sjá hér
9. bekkur kynnti þróunarmarkmið SÞ um sjálfbæra þróun
Sl. fimmtudag kynntu nemendur í 9. bekk Salaskóla hvernig þau sjá ný þróunarmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun. Á kynningunni var utanríkisráðherra, foreldrar og nemendur 8. og 9. bekkja. Friðrik Dór var kynnir.
Þetta var afar áhugaverð og fjölbreytt kynning og ýmsar góðar hugmyndir settar fram. Í framhaldi af þessu mun Salaskóli leggja meiri áherslu á vinnu sem tengist Sameinuðu þjóðunum og sjálfbærri þróun. Flottir krakkar sem eru klár á því hvernig þau vilja sjá heiminn okkar eftir 15 ár. #okkarheimur2015. Myndir frá kynningunni má sjá á facebooksíðu Salaskóla.
Þemadagar næstu þrjá daga
Salaskóli verður með sérstaka dagskrá 6. – 8. maí í tilefni afmælis bæjarins. Krakkarnir kynnast bænum sínum með því að ferðast um bæinn gangandi eða í strætó og skoða ýmsa staði, kynna sér söguna, náttúruna, menninguna og mannlífið. Einnig vinna þau verkefni um bæinn, fara í ratleiki og aðra skemmtilega leiki, syngja Kópavogslög og taka myndir og teikna myndir. Föstudaginn 8. maí verður grillveisla á skólalóðinni.
Við skiptum krökkunum í 12-14 manna hópa og í hverjum hópi eru nemendur á öllum aldri, eins og á fjölgreindaleikunum. Elstu nemendur eru hópstjórar. Þessa daga hefst skólastarf kl. 830 og lýkur kl. 1315. Skólinn opnar að sjálfsögðu á sama tíma og venjulega. Ekki er val eða sundkennsla þessa daga. Til að einfalda málin eiga allir að koma með nesti fyrir kaffið þessa daga, þe. samloku/ávöxt og vatn eða djús til að drekka. Fínt að hafa það í litlum íþróttapoka því þau eru að þvælast út um allt. Athugið að nestið verður að vera hnetulaust!
Kópurinn – viðurkenningar skólanefndar Kópavogs
Skólanefnd Kópavogs auglýsir hér með eftir tilnefningum til viðurkenninga fyrir framúrskarandi skólastarf í grunnskólum Kópavogs.
Viðurkenningar verða veittar fyrir 3 – 5 verkefni sem stuðla að nýbreytni og framþróun innan skólanna. Með því er átt við nýjungar í skólastarfi eða þróunarverkefni sem fela í sér umbætur eða leiða til framfara í skólastarfi.
Skriflegar tilnefningar skulu berast rafrænt á sérstöku eyðublaði til grunnskóladeildar Kópavogs til ragnheidur@kopavogur.is eigi síðar en 4. maí 2015.
Einnig er hægt að tilnefna á vef bæjarins http://www.kopavogur.is/
Sigurvegarar upplestrarkeppni grunnskólanna

Aníta Daðadóttir hreppti 1. sætið í upplestrarkeppni grunnskólanna í Kópavogi og Björn Breki Steingrímsson 2. sætið. Þau eru bæði nemendur í Salaskóla. Þetta er stórglæsilegur árangur hjá þeim enda tóku þátt í keppninni 18 bestu upplesarar í 7. bekk í Kópavogi. Til hamingju með þennan frábæra árangur.
Umbótaáætlun vegna ytra mats
Haustið 2014 gerðu starfsmenn Námsmatsstofnunar úttekt á starfsemi Salaskóla. Þeir þættir sem voru skoðaðir voru stjórnun, nám og kennsla, innra mat og nám nemenda með sérþarfir. Niðurstöður úttektarinnar eru settar fram í skýrslu sem var birt í febrúar 2015 en kynntar starfsfólki í byrjun janúar. Þar eru dregnir fram styrkleikar í starfi skólans og sett fram tækifæri til umbóta.
Matshópur skólans var skipaður upp á nýtt í byrjun janúar og tók þegar til við að vinna að umbótaáætlun út frá þeim ábendingum sem koma fram í skýrslunni. Í hópnum eiga sæti Agnes Þorleifsdóttir, kennari, Berglind Hansen, fulltrúi foreldra, Hafsteinn Karlsson, skólastjóri, Hulda Björnsdóttir, deildarstjóri, Jóhanna Björk Daðadóttir, kennari, Jóhanna Pálsdóttir, kennari, Kjartan Ólafur Gunnarsson, nemandi, Magnús Halldórsson, húsvörður, Margrét Sveinsdóttir, sérkennari, María Helga Gunnarsdóttir, kennari og Matthildur Einarsdóttir, nemandi. Hópurinn fór skipulega í skýrsluna og rýndi sérstaklega í þær ábendingar sem þar koma fram. Hann lauk vinnu við skýrsluna í byrjun mars og á starfsmannafundi 13. mars voru niðurstöður hópsins kynntar og unnið áfram með ákveðna þætti á þeim fundi með svokölluðu kaffihúsafyrirkomulagi.
Umbótaáætlunin sem er nú komin á heimasíðu skólans, er sett upp í töfluformi ásamt tímaramma og ábyrgðaraðilum. Einhver atriði eru tvítekin í úttektarskýrslunni þar sem þau koma fram undir mismunandi matsþáttum. Í umbótaáætluninni er sérhver tillaga til úrbóta úr skýrslunni tekin fyrir í sömu röð og þær eru í skýrslunni. Í einhverjum tilfellum er búið að framkvæma það sem bent er á. Það kemur þá fram í áætluninni. Salaskóli þakkar gott samstarf við þá sem stóðu að og framkvæmdu úttektina. Úttektin er afar gagnleg fyrir skólastarfið og þróun þess.
Fyrstubekkingar buðu foreldrum í heimsókn

Dagurinn hjá fyrstubekkingum í Salaskóla hófst með foreldrasýningu í salnum. Foreldrar mættu í morgunsárið inn í sal og krakkarnir sungu fyrir þau fjölmörg lög undir stjórn Heiðu og Ragnheiðar tónmenntakennara og síðan fóru þau með langt ljóð um dýrin í Afríku með tilheyrandi söng. Salurinn var einmitt skreyttur með þeirra eigin litríku myndum af dýrunum í Afríku. Gaman var að sjá hvað krakkarnir stóðu sig vel og allir voru með. Eftir sýninguna í salnum fóru foreldrar í heimsókn í stofur krakkanna þar sem þeir fengu að skoða hvaða verkefni eru í gangi.

