Í dag, miðvikudaginn, 28. janúar, frá kl. 17:30-18:20 er mikilvægur kynningarfundur fyrir foreldra í 2. bekk. Þar verður sagt frá nemendum í 2. bekk sem eru allir á einhverfurófinu. Við ætlum að kynna hvað einhverfurófið er og hvernig þessir ákveðnu nemendur taka þátt í skólastarfinu með okkur. Foreldrar nemendanna munu kynna þá.
Einnig verða þau úrræði kynnt sem Salaskóli býður upp á fyrir nemendur á yngsta stigi sem þurfa á stuðningi að halda, bæði hvað varðar nám og annað.
Mjög mikilvægt er að allir foreldrar mæti. Fundurinn er í salnum okkar.

Nemendur í 7. bekk, ernir og fálkar, lögðu af stað í ferð í gærmorgun og var áfangastaðurinn Reykir í Hrútafirði. Þar munu nemendur dveljast í eina viku í skólabúðum við nám og leik ásamt nemendum úr öðrum skólum. 


Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins (SHS), hefur útbúið
Það er orðin hefð í Salaskóla að halda upp á Lúsíumessu sem tengist 
Stórskemmtilegur viðburður átti sér stað í dag þegar nemendur í 6. bekk buðu yngri nemendum skólans að koma og horfa á jólaleikrit súlna og langvía. Leikritið var frumsamið af þeim en byggðist að hlut til á jólasveinavísum Jóhannesar úr Kötlum.