Nemendur á miðstigi hafa verið að vinna nokkur verkefni í haust í tengslum við samvinnuverkefni okkar í Comenius. Unnið hefur verið að sameiginlegri matreiðslubók sem verður gefin út, einnig gerðu miðstigsnemendur myndband á spjaldtölvur um Íslenska jólasiði. Þetta myndaband ásamt myndböndum frá hinum löndunum verða sett inn á sameiginlega vefsíðu landanna. Tengill er á síðunni okkar.
Author Archive: Logi
Hvernig varð jólaþorpið til?
Eins og fram hefur komið hér á síðunni er nú til sýnis í skólanum afrakstur þemaverkefnis nemenda í 7. og 8. bekk sem ber heitið JÓLAÞORPIÐ. Nokkrir nemendur tóku myndir meðan á gerð jólaþorpsins stóð sem sýnir vel hvernig verkið gekk fyrir sig. Myndasmiðir eru Magnús Garðar, Viktor Gunnars og Davíð Birkir og hér er sýningin þeirra. Einnig var gert myndband sem Davíð Birkir stóð að.
Kríur eru besti skákbekkur Salaskóla
Nú er lokið bekkjamóti Salaskóla í skák. Alls kepptu 52 lið eða um 160 manns. Öll sterkustu liðin söfnuðust saman á sal föstudaginn 13.12.2013 og kepptu um titilinn besti skákbekkur Salaskóla 2013. Í úrslitariðlinum voru 14 lið og fóru leikar þannig:
Nr Heiti liðs Vinningar
1 7 Kríur B 17,5
2 7 Kríur A 16,5
3 7 Mávar A 16
4 5 Jaðrakanar 13
5 6 Súlur 12,5
6 5 Spóar A 11,5
7.-.8 7 Mávar B 11
7.-.8 4 Tjaldar 11
9 10 Hrafnar A 10,5
10 7 Ritur 9
11 8 Teistur A 7,5
12 4 Vepjur 5
13 2 Músarindlar 4
14 4 Tildrur 3,5
Keppnin var æsispennandi en leikar enduðu þannig að Kríur vörðu titilinn frá því í fyrra. En athygli vakti að B lið Kríubekkjarins sigraði mótið, sem segir okkur að þessir bókstafir skipta ekki öllu máli.
Sigurliðið 7 Kríur B:
Benedikt Árni Björnsson
Elvar Ingi Guðmundsson
Orri Fannar Björnsson
Þorsteinn Björn Guðmundsson
Silfurliðið 7 Kríur A:
Jason Andri Gíslason
Aron Ingi Woodard
Ágúst Unnar Kristinsson
Bronsliðið 7 Mávar A:
Róbert Örn Vigfússon
Kjartan Gauti Gíslason
Andri Már Tómasson
Breki Freysson
Mótsstjóri var Tómas Rasmus.
3. riðli í undankeppni í skák lokið
Nú er lokið þriðja riðli í undankeppni fyrir bekkjamót Salaskóla í skák 2013.
Föstudaginn 13.12.2013 kepptu 13 lið úr unglingastigi sem eru krakkar úr 8.- 10. bekk.
Heildarúrslit urðu þessi:
Röð Heiti liðs vinningar
1 Hrafnar 10 A 14,5
2 Kjóar 9 A 14
3 Teistur 8 A lið 14
4 Kjóar 9 B 13,5
5 Hrafnar 10 C 13
6 Lundar 8 a lið 13
7 Smyrlar 9 C 11,5
8 Krummar 10 11
9 Hrafnar 10 B 11
10 Smyrlar 9 A 10
11 Smyrlar 9 B 10
12 Kjóar D dömur 6
13 Smyrlar 9 D 5,5
Í sigurliðinu „Hrafnar A“ voru kapparnir: Skúli E Kristjánsson Sigurz,
Magnús Már Pálsson, Magnús Hjaltested og Ragnar Páll Stefánsson
Bestum árangri pr. árgang náðu þessir:
10b. Hrafnar.
9b. Kjóar
8b. Teistur
Mótsstjóri var Tómas Rasmus.
Sjöttubekkingar standa sig vel
Sjöttubekkingar hafa verið á fullu að undanförnu að æfa jólaleikrit sem byggt er á Jólasveinakvæði Jóhannesar úr Kötlum – í leikgerð Sigrúnar Bjajrkar Cortes. Nú er komið að lokum æfinga og verður leikritið sýnt fyrir nemendur og foreldra í þessari viku. Þegar leikverk er sett á svið þurfa allir nemendur að taka höndum saman og í 6. bekkjunum báðum, svölum og súlum, eru hljóðmenn, ljósamenn, kynnar, upplesarar, tónlistarfólk auk leikara á sviði sem leggjast á eitt til að sýningin gangi upp. Það tekst svo sannarlega! Til hamingju kennarar og nemendur í 6. bekk með frábæran árangur.
Jólaþorp nemenda í 7. og 8. bekk.
Nemendur í 7. og 8. bekk hafa undanfarna þematíma unnið að jólaþorpi sem nú rís fyrir framan bókasafn skólans. Það hefur upp á flest það að bjóða sem prýða má slíkt þorp, s.s. skóla, vita, bryggju, báta, lest, ráðhús, skíðabrekku, tjörn, jólasveina og að sjálfsögðu fólk af öllum stærðum og gerðum. Nemendur hafa verið áhugasamir og duglegir í þessari vinnu og hvetjum við foreldra og aðra að koma og líta á þorpið við tækifæri.
Lúsíumessan 13. desember
Það er orðin hefð í Salaskóla að halda upp á Lúsíumessu 13. desember sem tengist verndardýrðlingnum Santa Lúsíu. Kór Salaskóla, sem skipaður er nemendum úr 3.-7. bekk, sér ávallt um Lúsíuathöfnina undir stjórn tónmenntakennara sem að þessu sinni var Ragnheiður Ólafsdóttir. Krakkarnir klæðast þá hvítum kyrtlum, hnýta silfurbönd um mitti sér og höfuð og halda á ljósi. Lúsían sjálf er prýdd ljósakransi og með rauðan linda um mitti. Í morgun fór Lúsíugangan um allan skólann með söng og tilheyrandi hátíðleika. Guðrún Vala Matthíasdóttir í mávum var Lúsían þetta árið. Nemendur komu fram á ganga með kennurum sínum og fylgdust með göngunni. Falleg og friðsæl stund í Salaskóla í morgunsárið.
Fimmtubekkingar láta gott af sér leiða
Krakkarnir í 5.bekk í Salaskóla, spóar og jaðrakanar, ákváðu að þau vildu láta gott af sér leiða fyrir jólin þar sem margir eiga um sárt að binda þegar líða fer að jólum. Þau ákváðu að safna saman öllum fatnaði sem fjölskyldan heima fyrir hafði ekki lengur not fyrir ásamt því að kaupa gjafir fyrir þá sem minna mega sín. Þau pökkuðu inn öllum gjöfunum og fóru með þær ásamt öllum fatnaðinum til Mæðrastyrksnefndar í Fannborginni. Þar sem þau voru mjög dugleg í söfnuninni þurftu þau að fá foreldri með sér í lið til að ferja gjafirnar og fatnaðinn fyrir þau því magnið var þvílíkt að ekki var hægt að taka það með í strætó.
Mjög vel var tekið á móti hópnum í Fannborginni þar sem þau fengu gómsætar kleinur, piparkökur og drykk til að snæða á staðnum. Þegar þau höfðu sungið fyrir starfsmenn Mæðrastyrksnefndar fengu þau að launum lukkuhálsmen sem vakti mikla lukku. Á leið sinni út á stoppustöð gengu þau fram hjá félagsheimilinu Gjábakka og ákváðu að kíkja þar inn og syngja fyrir heldri borgarana sem tóku vel á móti þeim. Fleiri myndir.
Gott fyrir lestraráhugann að fá rithöfund í heimsókn
Skín í rauðar skotthúfur …
Í dag, 11. desember, er rauður dagur í Salaskóla en þá setur starfsfólk og nemendur skólans upp rauðar jólasveinahúfur og margir klæðast einhverju rauðu. Þetta er hefð sem lengi hefur verið viðhöfð í skólanum á þessum degi í desember. En eins og flestir vita fer bærinn að fyllast af alvöru jólasveinum innan tíðar og sá fyrsti kemur einmitt til byggða næstu nótt, blessaður karlinn hann Stekkjarstaur. Í morgunsárið voru margir krakkar mættir í bókasafn skólans til að ná sér í lestrarefni – og jólasveinahúfurnar settu óneitanlega skemmtilegan og jólalegan svip á bókasafnið. Já, allt fullt af litlum og stórum jólasveinum í skólanum í dag.