kkuhlabor__6._bekk_006

Vetrarfrí

kkuhlabor__6._bekk_006
Krakkarnir í 6. bekk gerðu sér glaðan dag í morgun og komu með kökur í skólann sem fóru á sameiginlegt hlaðborð þeirra inni í skólastofunni. Þeir sem áttu leið framhjá duttu í lukkupottinn því þeir fengu að gæða sér á öllum kræsingunum. Krakkarnir voru að fagna góðu starfi undanfarnar vikur og væntanlegu vetrarfríi. Vetrarfrí er í Salaskóla mánudag og þriðjudag, 25. -26. október en kennsla hefst aftur miðvikudaginn 26. október skv. stundaskrá.

reykir_5

Lífið á Reykjum

reykir_5
Nemendur á Reykjum halda dagbók. Hér kemur dæmi frá nemanda, birt með góðfúslegu leyfi.

Dagur 2 á Reykjum

Ég vaknaði seint á eftir hinum. Ég fór og fékk mér hafragraut og fór í tíma. Ég byrjaði í „undraheimi auranna“ og lærði margt um peninga og lán til dæmis debet- og kreditkort, lán og vexti. Síðan fór ég í íþróttir og sund og var aðeins lengur í sundi. Eftir það var frjálst og síðan matur og eftir það var kvöldvaka og kvöldhressing. Eftir það skrifaði ég í þessa bók og þá kom Hjalti og sagði þið eigið að fara að sofa eftir tvær mínútur svo góða nótt.

reykir4

Furðulegar kveðjur frá Reykjum

reykir4
Stórundarlegir atburðir áttu sér stað á kvöldvöku á Reykjum í gærkvöldi. Menn breyttust í konur, börn breyttust í gulrætur, ungur drengur át 5 mjólkurkex á minna en mínútu og einhverjir fengu kalda sturtu  úti á miðju gólfi. Spenningurinn er engu minni fyrir kvöldvökuna í kvöld. Hvað gerist næst???Annars er lítill tími til að skrifa fréttir, það er svo margt skemmtilegt að gera!

Nokkrar myndir frá Reykjum í myndasafni og fleiri eiga eftir að bætast við.

reykir3

Stuðkveðjur frá Reykjum

reykir3
Dagurinn í dag er búinn að vera hreint frábær. Veðrið er gott, logn og 2-3 stiga frost. Krakkarnir una sér við leik og störf og hér er bros á hverju andliti. Kennararnir eru ótrúlega ánægðir með gemlingana sína, kvöldið gekk vel og voru krakkarnir endurnærðir í morgun og tóku vel til matar síns. Í dag er m.a. búið að skoða byggðasafnið, fara í íþróttir og sund og fræðast um undraheim auranna. Ekki er svo allt búið enn, allur eftirmiðdagurinn eftir… og auðvitað kvöldvakan!

reykir2

Bestu kveðjur frá Reykjum

reykir2
Nú eru reykjalingarnir komnir á áfangastað. Ferðin gekk vel þrátt fyrir rok og rigningu. Gert var stutt stopp í Borgarnesi til að pissa og teygja úr sér. Nú eru krakkarnir komnir í sína hópa og andinn í hópnum mjög góður, allir hressir og láta ekki bleytu og vind á sig fá. Skoðið heimasíðu Skólabúðanna á Reykjum.

 

karpov_og_hilmir

Húllað, hoppað og skákir tefldar

karpov_og_hilmir
Á seinni degi fjölgreindaleika gekk allt eins og í sögu. Í íþróttahúsinu var húllað og hoppað af miklum móð, klifrað upp í rjáfur, boltar látnir skoppa og handleggir jafnvel lengdust um mun t.d. á „hanga á slá“ stöðinni. Sums staðar reyndi svo sannarlega á kunnáttu í landafræði og á einum stað var kannað hversu gott þreifiskynið væri hjá krökkunum. Í sjálfu skólahúsnæðinu var t.d. jóga iðkað, sögur skrifaðar, danssporin tekin, á einni stöðinni reyndi mjög á leikhæfileika að ógleymdri skákstöðinni. Á þeirri stöð tók skáksnillingurinn Birkir Karl á móti liðunum og skoraði á þau að tefla við sig. En ekki langt frá þeirri stöð vildi svo vel til að sat annar skáksnillingur, reyndar fv. heimsmeistari Anatolí Karpov, og tefldi við einn af nemendum skólans, Hilmi Frey. Karpov er hér á landi vegna 111 ára afmælis Taflfélags Reykjavíkur og heimsótti skólann okkar í leiðinni og tók nokkrar skákir. Ekki eru allir jafnheppnir og við að fá heimsmeistarann sjálfan í heimsókn.
Hér eru MYNDIR FRÁ FJÖLGREINDALEIKUM: Degi 2 og einnig frá heimsókn Karpovs.


hlladansajoga2skakhanga

pusl

Stóra trambólínið er svo skemmtilegt

pusl
Fréttasnápur GREINDARLEGRA FRÉTTA hitti nokkra krakka á púslstöðinni snemma morguns. Þau voru hress og kát og er þau voru innt eftir því hvað væri skemmtilegasta stöðin á fjölgreindaleikunum hingað til nefndu þau nokkur stóra trambólínið. Ein stelpan sagði þó að kaðlaklifrið vera nokkuð skemmtilegt en maður þyrfti að passa sig að „brenna sig“ ekki á fótunum á leiðinni niður kaðalinn. Þau héldu svo áfram að púsla af krafti og létu ekki trufla sig lengur við spjall.

fjlgr.leikar_2011_fyrri_dagur_082

Skemmtilegur dagur á enda

fjlgr.leikar_2011_fyrri_dagur_082
Nú er fyrri dagur fjölgreindaleika á enda. Nemendur fóru heim afar sáttir að því er virtist. Tveir ungir nemendur í 2. bekk hittu Stínu-Línu á leiðinni út úr skólanum og sögðust „… hlakka svo svakalega til“ að koma í skólann á morgun, þá ættu þær að vera á stöðvunum í íþróttahúsinu. Þar fá þær Hrafnkatla og Hekla m.a. að fara í handbolta, körfubolta, limbó, kaðlaklifur, hoppa á trampólíni, húlla húlla, þekkja fána og spreyta sig á fiitness þraut. Góður dagur er á enda runninn.