Legómeistararnir, Róbóbóbó, voru heiðraðir með miklu lófataki í sal skólans í gær þar sem söfnuðust saman nemendur skólans og starfsfólk. Lególiðið endurtók skemmtiatriði sem þeir fluttu í keppninni og sungu og léku svokallaðan Legóbílablús við mikinn fögnuð áheyrenda. Í dag kom svo iðnaðarráðherra, Katrín Júlíusdóttir, hitti legómeistarana og fékk kynningu á verkefninu þeirra.
![legmeistarar_heirair_001small.jpg](https://salaskoli.is/wp-content/uploads/2009/11/legmeistarar_heirair_001small.jpg)
Legómeistarar heiðraðir
Birt í flokknum Fréttir.