Skólanum hefur borist bréf frá lögreglunni. Við hvetjum alla foreldra til að lesa bréfið með því smella á LESA MEIRA.
Kæru foreldrar/forráðamenn grunnskólanemenda í Kópavogi.
Með þessu bréfi lögreglumanna á svæðisstöðinni í Kópavogi viljum við koma fréttum og ábendingum til ykkar. Að okkar mati hefur gengið vel í málefnum barna og ungmenna í bænum, engar sérstakar uppákomur hafa verið s.l. mánuði. Sama er að segja um áramótin, gengu þau að öllu leyti vel.
Áfengissala til ungmenna – Í vetur hefur borið meira en áður á því að lögreglunni hafi verið tilkynnt um sölu á áfengi til ungmenna úr svokölluðum "bjórbílum" sem eru á ferðinni og selja áfengi þeim sem hafa pantað hann. Afhendingarstaðurinn er ákveðin hverju sinni. Lögreglan hefur haft afskipti af nokkrum slíkum bifreiðum í vetur í Kópavogi. Vinsælir afhendingarstaðir virðast vera bifreiðastæði og þá sérstaklega yfirbyggðar bílageymslur t.d. Hamraborgin og Smáratorg. Gott væri að foreldrar sem eru á ferðinni á kvöldin og/eða í foreldrarölti hafi vakandi auga fyrir þeim bifreiðum sem hugsanlega gætu verið að selja áfengi til ungmenna og láti þá vita til lögreglu í 112.
Útivist – Nú hefur birt svo um munar þar sem komin er marsmánuður og er það jákvætt í hugum flestra. Um leið og birtir fylgir því gjarnan að börnin sækjast eftir að fá að vera lengur úti á kvöldin. Viljum við minna foreldra/forráðamenn á útivistarreglurnar en fram til 1. maí mega börn 12 ára og yngri ekki vera lengur en til kl. 20 og þau sem eru 13 ára mega vera til kl. 22. Í lögunum er miðað við aldursárið. Þessar tímasetningar eru sjálfsögðu háðar ykkar leyfi, þ.e.a.s. að þið geti stytt tímann enn frekar en ekki lengt hann. Vinnulag lögreglu er að ef börn verða uppvís af broti á útivistartíma eru þau keyrð heim til sín af lögreglu eða á næstu lögreglustöð þar sem foreldrum er gert að sækja þau. Öll brot á útivistarreglum eru tilkynnt barnavernd þar sem um brot á barnverndarlögum er um að ræða. Hvetjum við foreldra til að virða útivistartíma barna sinna.
Lögreglumenn í Kópavogi eru mjög ánægðir með það samstarf hefur verið við íbúa Kópavogs og samstarfsmenn hjá Kópavogsbæ. Ef þið hafið einhverjar ábendingar um eitthvað sem má betur fara eða við getum liðsinnt ykkur hafið þá samband. Allar upplýsingar um svæðisstöðina er að finna á heimsíðu lögreglunnar, http://www.lrh.is/., bæði , netföng og símar.
Með kæri kveðju um von um áframhaldandi gott samstarf.
Anna Elísabet Ólafsdóttir, svæðislögreglumaður
Gylfi Sigurðsson, svæðisstjóri.

Á morgun, þriðjudaginn 4.03., verður skákmeistaramót unglinga í 8. til 10. bekk í Salaskóla. 
Nemendur og starfsfólk Salaskóla hafa notið tónlistarflutnings góðra gesta þessa vikuna. Í skólann komu á dögunum þrír tónlistarmenn sem kættu 5.-7. bekkinga með spili og líflegum söng sem krakkarnir tóku óspart undir. Sumir tóku jafnvel sporið og dilluðu sér. Þetta var hluti af verkefninu Tónlist fyrir alla.

Það var ekki að sjá að krakkarnir í Salaskóla létu snjóbyl og válynd veður hafa áhrif á leikgleðina í útivistinni í morgun. Fótboltaleikur var í fullum gangi, snjóhús og snjókarlar byggðir og krakkarnir nutu þess greinilega að veltast um í snjónum. Það sást meira að segja í kollinn á Hafsteini skólastjóra þegar betur var að gáð. Þessa dagana er býsna mikilvægt að börnin hafi með sér góðan hlífðarfatnað í skólann svo þau geti notið útiveru sem er svo holl fyrir þau. Fleiri 
Í dag héldu nemendur í 1. og 2. bekk upp á þann áfanga að hafa verið 100 daga í skólanum.
































Hildur Berglind Jóhannsdóttir sem er nemandi í Ritum í Salaskóla gerði sér lítið fyrir um helgina og varð Íslandsmeistari stúlkna 10 ára og yngri. Við óskum Hildi innilega til hamingju með frábæran árangur og óskum henni áframhaldandi góðs gengis. 