Þriðjudaginn 19. febrúar fer 10. bekkur í skíðaferð í Bláfjöll. Lagt verður af stað frá skólanum kl. 10:30 og nemendur eiga því ekki að mæta fyrr en þá. Gist verður eina nótt og lagt af stað til baka kl. 14:30 á miðvikudeginum. Við verðum í skíðaskála Breiðabliks en þar er mjög góð aðstaða fyrir hópinn.
Smellið á lesa meira fyrir frekari upplýsingar.
Matur
Nemendur koma sjálfir með nesti að öðru leyti en því að kvöldmatur verður sameiginlegur. Þeir nemendur sem ekki eru í mat þurfa að borga fyrir hann 250 kr.
Klæðnaður og svefnpoki
Allir verða að koma vel klæddir og með nóg af hlýjum aukafötum. Ekki gleyma húfum, vettlingum og ullarsokkum. Nemendur eiga líka að koma með svefnpoka.
Kostnaður
Skólinn borgar skálagjald og rútukostnað en nemendur greiða sjálfir lyftukort og fyrir leigu á skíðabúnaði, ef um slíkt er að ræða.
Skíðabúnaður
Sumir eiga sjálfir skíði eða bretti. Við hvetjum þá sem ekki eiga að athuga hvort þeir geti fengið lánað hjá ættingjum. Skíðaleiga er í Bláfjöllum. Þeir sem ætla að nota hana þurfa að láta okkur vita í síðasta lagi á föstudag, 15. febrúar hvaða búnað þeir ætla að leigja. Verð fyrir skíða- eða brettapakka yfir daginn er kr. 2500.
Skíðakennsla fyrir alla
Við verðum með margreynda úrvals skíðakennara með okkur sem kennir bæði byrjendum og lengra komnum.
Aðstoð foreldra
Aðstoð foreldra er mjög vel þegin. Fínt er ef einhverjir vilja koma og vera allan tímann, en ekki síður gott að fá aðstoð hluta af tímanum. Þeir sem ætla að bjóða fram krafta sína hafi samband við skrifstofu skólans – sími 570 4600 eða sendi tölvupóst á asdissig@kopavogur.is
Kvöldvaka
Um kvöldið verður kvöldvaka og við biðjum nemendur að huga að skemmtiatriðum og leikjum til að fara í þar.
Fararstjórar
Nokkrir kennarar og starfsmenn Salaskóla fara með og aðstoða nemendur eftir því sem þörf er á.
Reglur
Í skíðaferðinni gilda skólareglur og skálareglur. Nemendur verða að fara eftir þessum reglum og hlýða kennurum og starfsmönnum. Verði misbrestur á því er tafarlaust hringt í foreldra og þeir beðnir um að sækja barn sitt. Skiljið GSM – síma eftir heima, það er mikil hætta á að týna þeim. Sama má segja um ipod. Hver og einn ber ábyrgð á sínum farangri og ef eitthvað týnist ber nemandinn sjálfur fulla ábyrgð á því.
Upplýsingar
Hafið samband ef eitthvað er óljóst og þið óskið frekari upplýsinga.