Foreldrafélag Salaskóla, í samstarfi við Salaskóla, býður nemendum í 4.-10. bekk fræðsluerindi er snýr að þáttum er varða netöryggi, upplýsinga- og miðlalæsi. Auk þess verður foreldrum boðið fræðsluerindi um sama efni í sömu viku og fræðsla til nemenda fer fram á skólatíma. 8.-10. bekkur – …
Opnað hefur verið fyrir tilnefningar til Kópsins, sem eru viðurkenningar menntaráðs Kópavogs fyrir framúrskarandi skóla- og frístundastarf í grunnskólum Kópavogs. Einnig er opið fyrir umsóknir í forvarnarsjóð Kópavogsbæjar. Áhugasamir geta sent inn tilnefningar/umsóknir eða komið hugmyndum til skólastjóra sem getur aðstoðað við ferlið.
Hér má nálgast skóladagatal 2024-2025 : skoladagatal-2024-2025-samthykkt-2 Sumarfrístund verðandi 1.bekkinga verður í 9 skóladaga (kl. 8-16), vikuna 12.-16.ágúst og 19.-22.ágúst (frístund lokuð á skólasetningardegi). Hefðbundin frístund opnar svo mánudaginn 26.ágúst fyrir þau börn sem eru skráð úr 1.-4.bekk.
Fimmtudaginn 21. mars nk. er alþjóðlegur dagur Downs heilkennis. Markmið dagsins er að auka vitund og minnka aðgreiningu. Dagsetningin er táknræn að því leyti að hún vísar til þess að Downs-heilkenni orsakast af auka litning í litningi 21, þ.e. 3 eintök af litning 21 – 21.03. Við …
Innritun 6 ára barna (fædd 2018) fer nú alfarið fram í gegnumþjónustugátt á vef bæjarins https://thjonustugatt.kopavogur.is Sjá nánar hér: Innritun 2024_isl_ens_pol