Undanfarna daga hafa nemendur á unglingastigi verið að vinna að lokaverkefnum sínum þetta skólaárið, en þetta hefur verið hefð hér í Salaskóla undanfarin ár.
Lokaverkefni 8. bekkjar hefur snúist um að gera góðverk sem eftir hefur verið tekið í nærsamfélaginu sem og víðar.
Nemendur í 9. bekk hafa í lokaverkefni sínu verið að hanna matarvagna; setja sama matseðla, rekstraráætlun, líkön, útbúa markaðsefni og fleira.
Nemendur í 10. bekkur hafa í sínu lokaverkefni verið að vinna að nýsköpunarverkefni þar sem þau hanna vöru og útbúa viðskiptaáætlun.



