Hugsaðu þér ljósmyndina sem miðju í sögu. Reyndu að ímynda þér hvað gerist áður en myndin var tekin og einnig hvað í vændum er.
Smelltu á þá mynd sem þú vilt skoða betur. Þú getur afritað ljósmyndina með því að hægrismella á hana og velja afrita – "copy" Opnaðu síðan ritvinnslu (Word) og límdu "paste" myndina inn efst á blaðið. Byrjaðu síðan að skrifa söguna. Mundu eftir fyrirmælunum.
|