Tilkynningar um forföll nemenda og beiðnir um leyfi frá skólasókn

Foreldrum/forsjáraðilum ber að tilkynna forföll nemenda á skrifstofu skólans sem allra fyrst að morgni með símtali, veikindaskráningu í gegnum Mentor eða í tölvupósti til ritara.

Athugið að einungis á að nýta forfallaskráningarmöguleikann í Mentor ef um veikindi er að ræða. Ef veikindi eða forföll vara lengur en einn dag skal tilkynna þau daglega.
Sjá hlekk á pdf skjal til frekari útskýringa. Ástundun – Mentor

Beiðni um leyfi nemenda frá skólasókn skal berast frá foreldrum/forsjáraðilum.
Umsjónarkennarar/ritari afgreiða beiðni um leyfi í einn dag. Ef sækja þarf um leyfi fyrir tvo daga eða fleiri fer það í gegnum heimasíðu Kópavogs þar sem forsjáraðilar fara inn í Umsóknir og eyðublöð, velja Grunnskólar og Umsókn foreldri um tímabundið leyfi. Þá þarf að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum og nafn barnsins sem um ræðir valið. Hér má finna hlekk beint inn á innskráninguna.

Foreldrar/forsjáraðilar eru minntir á að þeir bera ábyrgð á að nemendur vinni upp það sem þeir kunna að missa úr námi meðan á leyfi stendur, sbr. 15. gr. laga um grunnskóla nr. 91/2008.

Einnig er bent á verklag Kópavogsbæjar í grunnskólum vegna ófullnægjandi skólasóknar; https://salaskoli.is/skolasokn/