Í Salaskóla er starfrækt foreldrafélag. Félagar í því eru allir foreldrar/forráðamenn nemenda í skólanum. Meginmarkmið félagsins er að efla samstarf milli foreldra/forráðamanna nemenda og skólans og stuðla að velferð nemenda í leik og starfi. Starf foreldrafélagsins byggist á skipulögðu samstarfi foreldra/forráðamanna nemenda í hverjum bekk og skólans.
Stjórn foreldrafélagsins er skipuð fimm aðalmönnum og tveimur varamönnum sem allir eru foreldrar/forráðamenn nemenda í skólanum. Stjórnin fundar reglulega einu sinni í mánuði og oftar ef ástæða er til. Til stendur að allar fundargerðir verði aðgengilegar á netinu. Ef foreldrar/forráðamenn vilja koma málum á framfæri við stjórnina þá er hægt að hafa samband við stjórnina í gegnum tölvupóst eða símleiðis. Stjórnarskipti eru á aðalfundi sem er haldinn að hausti.
Bekkjarfulltrúar: Tveir bekkjarfulltrúar koma frá hverjum bekk og er hlutverk þeirra m.a. að halda utan um bekkjarstarf í samráði við kennara og með þátttöku annarra foreldra og mæta á aðalfund foreldrafélagsins.
Nefndir: Ýmsar nefndir munu starfa á vegum foreldrafélagsins. Þær verða skipaðar af foreldrum/forráðamönnum nemenda.
Foreldrafélagið er með facebooksíðu og eru foreldrar hvattir til að fylgjast með henni.





Ja, hérna …. hvað er um að vera? Það voru margir vegfarendur sem spurðu sig þessarar spurningar í morgunsárið þegar sást á eftir hverjum furðufuglinum fara inn í Salaskóla. Þegar salaskoli.is fór á stúfana kom í ljós …