Sveitakeppni grunnskóla í skák í Kópavogi var mánudaginn 7. mars 2011 í Salaskóla. Keppnin hófst með skráningu kl 13:40. Mótið fór síðan í gang kl 14:30. Tefldar voru 5 umferðir. Keppt var í 4 manna liðum og mátti hvert lið hafa 1 til 2 varamenn. Keppt var einnig í þremur aldurshólfum. Þannig:
1.-.4 bekkur Yngsta stig
5.-.7 bekkur Miðstig
8.-.10 bekkur Unglingastig.
Hvert lið er skipað keppendum úr viðkomandi aldurshólfi en leyfilegt er að færa yngri nemendur upp í eldri aldurshólf til að tryggja fullskipuð lið á hverju stigi fyrir sig. Alls mættu 40 lið til keppninnar og hefur annar eins fjöldi skákmanna aldrei sést í Kópavogi.
Keppendur komu frá Álfhólsskóla, Hörðuvallaskóla, Kársnesskóla, Lindaskóla, Salaskóla, Smáraskóla, Snælandsskóla og Vatnsendaskóla.
Mótið var styrkt af Skákstyrktarsjóði Kópavogs og afhenti Hafsteinn Karlsson skólastjóri Salaskóla verðlaun fyrir bestan árangur. Mótsstjóri var Tómas Rasmus. Skádómarar voru Helgi Ólafsson og Smári Rafn Teitsson
Helstu úrslit:
Efstu 3 unglingalið flokki A liða:
1. Salaskóli Ung A lið 18 vinningar
2. Vatnsendaskóli Ung A lið 14 vinningar
3. Smáraskóli Ung A lið 12, 5 vinningur
Efstu 3 miðstigsliðin í Flokki A liða:
1. Álfhólsskóli Mið A lið 17 vinningar 39,5 bhols stig
2. Salaskóli Mið A lið 17 vinningar 39 bhols stig
3. Vatnsendaskóli Mið A lið 17 vinningar 28 bhols stig
Efstu 4 yngstastigsliðin í flokki A liða
1. Salaskóli Yngsta A lið 14 vinningar
2. Smáraskóli Yngsta A lið 12,5 vinningur hlutkesti
3. Hörðuvallaskóli Yngsta A lið 12,5 vinningur hlutkesti
4. Snælandsskóli Yngsta A lið 12,5 vinningur hlutkesti
Besta B lið í unglingaflokki:
Lindaskóli Ung B lið 11,5 vinningur
Bestu B og C lið á miðstigi:
Salaskóli Mið B lið 14 vinningar
Salaskóli Mið C lið 10 vinningar
Bestu B, C, D og E lið á Yngsta stigi:
Salaskóli Yngsta B lið 11,5 vinningur
Kársnesskóli Yngsta C lið 9 vinningar
Salaskóli Yngsta D lið 9,5 vinningur
Kársnesskóli Yngsta E lið 8 vinningar